„Gísli Lárusson“: Munur á milli breytinga
(Smáviðbót og settir inn tenglar) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 8: | Lína 8: | ||
Gísli var meðlimur [[Góðtemplarar|Góðtemplarareglunnar]] í 50 ár. | Gísli var meðlimur [[Góðtemplarar|Góðtemplarareglunnar]] í 50 ár. | ||
===Eiginkona og afkomendur=== | ===Eiginkona og afkomendur=== | ||
Lína 15: | Lína 14: | ||
Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: [[Árni Gíslason|Árni]] kaupmaður, [[Georg Gíslason|Georg]] kaupmaður, [[Theódóra Gísladóttir|Theódóra]], flutti til Bandaríkjanna en lést 1920 úr spönsku veikinni, [[Lárus Gíslason|Lárus]] og [[Kristín Gísladóttir|Kristín]], kona Bjarna Sighvatssonar bankaritara í Reykjavík. | Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: [[Árni Gíslason|Árni]] kaupmaður, [[Georg Gíslason|Georg]] kaupmaður, [[Theódóra Gísladóttir|Theódóra]], flutti til Bandaríkjanna en lést 1920 úr spönsku veikinni, [[Lárus Gíslason|Lárus]] og [[Kristín Gísladóttir|Kristín]], kona Bjarna Sighvatssonar bankaritara í Reykjavík. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
* Páll Eggert Ólafsson. ''Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940'', V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952. | * Páll Eggert Ólafsson. ''Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940'', V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952. | ||
* Ýmsir. ''Gullsmiðatal 1991'', Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991. | * Ýmsir. ''Gullsmiðatal 1991'', Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991. | ||
Lína 26: | Lína 21: | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur:Fólk]] | |||
[[Flokkur:Kaupmenn]] |
Útgáfa síðunnar 14. febrúar 2006 kl. 19:54
Gísli Lárusson (fæddur 16. febrúar 1865 á Kornhóli í Vestmannaeyjum, dáinn 27. september 1935). Hann var bóndi, gullsmiður og útgerðarmaður í Stakkagerði
Gísli nam gullsmíði og tók sveinsbréf 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum. Jafnframt var hann bóndi í Stakkagerði, formaður á áraskipinu Frið og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um sögu byggðarlagsins og sérstaklega um dýralífið í sjónum kringum Eyjarnar og fuglalífið í björgum þeirra. Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands. Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af Þorkeli Jóhannessyni sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum. Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef.
Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. Ísfélags, Björgunarfélags, togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum Framfarafélags Vestmannaeyja
Gísli var meðlimur Góðtemplarareglunnar í 50 ár.
Eiginkona og afkomendur
Eiginkona hans var Jóhanna Sigríður Árnadóttir, dóttir Árna Diðrikssonar í Stakkagerði og konu hans, Ásdísar Jónsdóttur frá Djúpavogi. Jóhanna var forstöðukona Kvenfélagsins Líknar.
Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: Árni kaupmaður, Georg kaupmaður, Theódóra, flutti til Bandaríkjanna en lést 1920 úr spönsku veikinni, Lárus og Kristín, kona Bjarna Sighvatssonar bankaritara í Reykjavík.
Heimildir
- Páll Eggert Ólafsson. Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940, V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952.
- Ýmsir. Gullsmiðatal 1991, Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, Ársrit Vestmannaeyja 1972, Vestmannaeyjum, Þorsteinn Þ. Víglundsson, 1972.