„Gísli Lárusson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |
||
Lína 3: | Lína 3: | ||
Gísli nam gullsmíði og tók sveinsbréf 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum. | Gísli nam gullsmíði og tók sveinsbréf 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum. | ||
Jafnframt var hann bóndi í [[Stakkagerði]] og formaður á árabát og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um [[Saga|sögu]] byggðarlagsins og sérstaklega um [[Sjávardýr|dýralífið í sjónum]] kringum Eyjarnar og [[Fuglar|fuglalífið]] í björgum þeirra. | Jafnframt var hann bóndi í [[Stakkagerði]] og formaður á árabát og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um [[Saga|sögu]] byggðarlagsins og sérstaklega um [[Sjávardýr|dýralífið í sjónum]] kringum Eyjarnar og [[Fuglar|fuglalífið]] í björgum þeirra. Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands. Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af [[Þorkell Jóhannesson|Þorkeli Jóhannessyni]] sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum. Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef. | ||
Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. [[Ísfélag Vestmannaeyja|Ísfélags]], [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags]], togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum [[Framfarafélag Vestmannaeyja|Framfarafélags Vestmannaeyja]] | Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. [[Ísfélag Vestmannaeyja|Ísfélags]], [[Björgunarfélag Vestmannaeyja|Björgunarfélags]], togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum [[Framfarafélag Vestmannaeyja|Framfarafélags Vestmannaeyja]] |
Útgáfa síðunnar 10. nóvember 2005 kl. 17:25
Gísli Lárusson (fæddur 16. febrúar 1865 á Kornhóli í Vestmannaeyjum, dáinn 27.september 1935). Hann var bóndi, gullsmiður og útgerðarmaður í Stakkagerði
Gísli nam gullsmíði og tók sveinsbréf 1885. Hann starfaði sem gullsmiður og úrsmiður í Eyjum. Jafnframt var hann bóndi í Stakkagerði og formaður á árabát og fróðleiksmaður. Hann var fjölfróður um sögu byggðarlagsins og sérstaklega um dýralífið í sjónum kringum Eyjarnar og fuglalífið í björgum þeirra. Gísli tók saman mikið örnefnasafn sem hefur verið varðveitt í handritasafni Fornleifafélagsins og hjá Örnefnastofnun Íslands. Þetta örnefnasafn hans var notað m.a. af Þorkeli Jóhannessyni sem tók saman rit um Örnefni í Vestmannaeyjum. Hluti Örnefnasafns Gísla birtist einnig hér víða á þessum vef.
Hann átti sæti í hreppsnefnd og sýslunefnd, var í stjórn ýmissa félaga í Vestmannaeyjum s.s. Ísfélags, Björgunarfélags, togarafélagsins Draupnis og kaupfélagsins Herjólfs. Hann var framkvæmdastjóri kaupfélagsins Bjarma í 10 ár. Hann var einn af stofnendum Framfarafélags Vestmannaeyja
Gísli var meðlimur Góðtemplarareglunnar í 50 ár.
Eiginkona og afkomendur
Eiginkona hans hét Jóhanna Sigríður Árnadóttir, sem var dóttir Diðriks Árnasonar.
Árið 1869 fluttu þau hjónin að Búastöðum og settust þar að í gamla bænum. Árið 1893 tóku þau svo við Stakkagerðisjörðinni og hófu að byggja þar.
Börn Gísla og Jóhönnu sem komust upp voru: Árni kaupmaður, Georg kaupmaður, Theódóra, Lárus og Kristín.
Heimildir
- Páll Eggert Ólafsson. Íslenskar æviskrár, frá landnámstímum til ársloka 1940, V. bindi. Reykjavík, Hið íslenska bókmenntafélag, 1952.
- Ýmsir. Gullsmiðatal 1991, Reykjavík, Félag íslenskra gullsmiða, 1991.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, Ársrit Vestmannaeyja 1972, Vestmannaeyjum, Þorsteinn Þ. Víglundsson, 1972.