„Einar Jónsson (Moldnúpi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2012 kl. 09:01

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Einar Jónsson


Einar Sigurþór Jónsson, Moldnúpi, fæddist að Moldnúpi undir Eyjafjöllum þann 26. apríl 1902 og lést 31. október 1969.

Einar fluttist til Vestmannaeyja og hóf formennsku á Úndínu árið 1930. Á þann bát fiskaði Einar mikið. Eftir það er hann formaður með Atlantis, Gullfoss og Garðar I.

Hann flutti til baka á Moldnúp og lifði til æviloka þar undir Eyjafjöllum.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.