„Guðjón Vigfússon (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(setti inn mynd) |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:KG-mannamyndir 3401.jpg|thumb|250px|Guðjón með börnum sínum.]] | [[Mynd:KG-mannamyndir 3401.jpg|thumb|250px|Guðjón með börnum sínum.]] | ||
[[Mynd:KG-mannamyndir 1199.jpg|thumb|250px|Tveir synir Guðjóns og frændi.]] | |||
'''Guðjón Vigfússon''' fæddist 15. september 1902 á Grenivík og lést 26. nóvember 1996.<br> | '''Guðjón Vigfússon''' fæddist 15. september 1902 á Grenivík og lést 26. nóvember 1996.<br> |
Útgáfa síðunnar 20. mars 2013 kl. 14:59
Guðjón Vigfússon fæddist 15. september 1902 á Grenivík og lést 26. nóvember 1996.
Hann byrjaði sjómennsku á kútter Haraldi frá Hafnarfirði 1919. Fór síðar til Danmerkur og var þar á ýmsum skipum til ársins 1929. Hérlendis var hann um langt skeið á togurum, fiskibátum og kaupskipum.
Hann kom 1941 til Vestmannaeyja stýrimaður á Sæfellinu og varð seinna skipstjóri á því. Var skipstjóri á b/v Sævari VE 102 1947-1948. Hafnarstarfsmaður og lóðs í Eyjum var hann 1949-50. Hann flutti til Reykjavíkur 1951. Þar var hann stýrimaður á Laxfossi og skipstjóri á Akraborg.
Fyrsta kona Guðjóns (1932) var Martha Jensen. Þau skildu. Önnur kona hans
(1937) var Kristjana Jakobína Jakobsdóttir. Þau skildu. Þriðja kona hans var Sigurrós Sóley Sigurðardóttir. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 49.
Guðjón byggði Hásteinsveg 49. Húsið var fokhelt um ármótin 1944-´45, og því var lokið vorið 1946.
(Sjá bók hans „Sýður á keipum”).
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannavísu um Guðjón:
- Guðjón skipstjórn gætnisprúð
- við grimmlund hafs og manna
- stýrir fornri Sæfellsúð
- um sollna vegi hranna.
Heimildir
- Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.
- Skipstjóra- og stýrimannatal I. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan. Reykjavík 1979.
- Læknar á Íslandi I., bls. 169. Gunnlaugur Haraldsson. Þjóðsaga ehf. 2000.