„Þorsteinn Gíslason (Görðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:KG-mannamyndir 16061.jpg|thumb|250px|Þorsteinn]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 16061.jpg|thumb|250px|Þorsteinn]]


'''Þorsteinn Gíslason''', [[Garðar|Görðum]], fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á [[Garðar I|Garðari I]]. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á [[Garðar II|Garðari II]]. Eftir það var Þorsteinn með [[Sjöfn I]] og [[Sjöfn II]] sem voru hans eigin bátar.
'''Þorsteinn Gíslason''', [[Garðar|Görðum]], fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá [Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á [[Garðar I|Garðari I]]. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á [[Garðar II|Garðari II]]. Eftir það var Þorsteinn með [[Sjöfn I]] og [[Sjöfn II]] sem voru hans eigin bátar.


[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:
[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:
Lína 34: Lína 34:
Mynd:KG-mannamyndir 15812.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 15812.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 16062.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 16062.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 16363.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 16448.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 16448.jpg
Mynd:Saga Vestm., E., I., 128g.jpg
Mynd:Saga Vestm., E., I., 128g.jpg

Útgáfa síðunnar 10. júlí 2012 kl. 16:07

Þorsteinn

Þorsteinn Gíslason, Görðum, fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá [Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á Garðari I. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á Garðari II. Eftir það var Þorsteinn með Sjöfn I og Sjöfn II sem voru hans eigin bátar.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:

Harðskiptinn við dimma dröfn
djarfur á þorskaleiðum,
Þorsteinn Gíslason á Sjöfn
sækir fast að veiðum.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Þorstein:

Garpur afla Görðum frá
geymir Steina heiti,
telja má í svæsnum sjá
Sjafnar kinnar bleyti.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Steina Gísla ég greini
gætinn í formanns sæti,
svikalaust sjós í kviku,
Sjöfn stýrir þétt úr höfnu.
Friðar lítt meiri miðin,
marinn þó velti fari,
dýrugga dyns úr mýri
dregur úr sjó ótregur.

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.