„Gullborg VE“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 4: | Lína 4: | ||
Til stóð að varðveita Gullborgina um aldamótin, þegar [[Vestmannaeyjahöfn]], [[Útvegsbændafélag Vestmannaeyja]] ásamt fleirum keyptu skipið, en ekkert varð úr þeim áformum. Gullborgin var þá seld til Ólafsvíkur, en útgerðin þar gekk illa og svo fór að skipið var selt á uppboði. Skipið hefur síðan legið í hirðuleysi í Reykjavíkurhöfn þar til nýlega að það var tekið upp í Daníelslipp í Reykjavík. Þar hvílir nú þetta mikla happafley. | Til stóð að varðveita Gullborgina um aldamótin, þegar [[Vestmannaeyjahöfn]], [[Útvegsbændafélag Vestmannaeyja]] ásamt fleirum keyptu skipið, en ekkert varð úr þeim áformum. Gullborgin var þá seld til Ólafsvíkur, en útgerðin þar gekk illa og svo fór að skipið var selt á uppboði. Skipið hefur síðan legið í hirðuleysi í Reykjavíkurhöfn þar til nýlega að það var tekið upp í Daníelslipp í Reykjavík. Þar hvílir nú þetta mikla happafley. | ||
[[Flokkur:Skip]] |
Útgáfa síðunnar 13. júní 2006 kl. 15:25
Gullborgin var smíðuð árið 1946 og er um 94 tonn að stærð. Aflakóngurinn Binni í Gröf var með skipið á árunum 1955 til 1972. Sonur Binna, Friðrik, sótti sjóinn með föður sínum og tók síðan við skipinu og var með það til ársins 2000.
Ási í Bæ söng um Binna í Gröf og sagði hann hafa fiskað 60.000 tonn úr sjó á Gullborginni. Ætla má að Friðrik hafi fiskað svipað, þannig að Gullborgin hefur skilað í kringum 100.000 tonnum á land undir stjórn þeirra feðga. Þó eru þetta ekki nákvæmar tölur.
Til stóð að varðveita Gullborgina um aldamótin, þegar Vestmannaeyjahöfn, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja ásamt fleirum keyptu skipið, en ekkert varð úr þeim áformum. Gullborgin var þá seld til Ólafsvíkur, en útgerðin þar gekk illa og svo fór að skipið var selt á uppboði. Skipið hefur síðan legið í hirðuleysi í Reykjavíkurhöfn þar til nýlega að það var tekið upp í Daníelslipp í Reykjavík. Þar hvílir nú þetta mikla happafley.