„Tanginn“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
Húsið '''Tanginn''' stóð við [[Strandvegur|Strandveg]] 46. Það var verslun Gunnars Ólafssonar en var rifin þegar verslun reis við hliðina. Þar er verslunarhúsnæði enn þann dag í dag.


== Verslun ==
Lóðina fékk myllusmiðurinn Birck, [[Johan Julius Frederik Birck]],  fyrir verslunarrekstur og stofnsetti verslunina Juliushaab árið 1845. Verslunina rak hann aðeins í nokkur ár og árið 1851 keypti N.N. Bryde verslunina handa tvítugum syni sínum, [[J.P.T. Bryde]]; jafnan kallaður Pétur Bryde. Árið 1879 lést faðir Péturs og erfði hann þá verslun föður síns, Garðsverzlun. Ekki var leyfilegt að einn einstaklingur ræki tvær verslanir og því hóf verslunarstjórinn Gísli Engilbertsson leigurekstur á Tanganum. Gísli rak verslunina til ársins 1893 en Pétur hafði gefið syni sínum verslunina árið 1889. Við versluninni tók, árið 1910, hópur manna við rekstrinum, Pétur Thorsteinsson, Gunnar Ólafsson og Jóhann Þ. Jósefsson. Verslunina nefndu þeir Gunnar Ólafsson & co.
{{Heimildir|
* Jóhann Gunnar Ólafsson. Verslunarstaðir í Vestmannaeyjum. Gamalt og nýtt. Reykjavík. Víkingsprent
}}
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 26. júlí 2005 kl. 08:27