„Gamla gatan“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 25: | Lína 25: | ||
:''að yrkja lífs síns ævintýr. | :''að yrkja lífs síns ævintýr. | ||
::Lag: Oddgeir Kristjánsson | ::Lag: [[Oddgeir Kristjánsson]] | ||
::Texti: Ási í Bæ | ::Texti: [[Ási í Bæ]] |
Útgáfa síðunnar 25. júlí 2005 kl. 11:46
Þjóðhátíðarlag | ||
1954 | 1955 | 1961 |
Lagið Gamla Gatan er með þeim frægustu lögum Vestmannaeyja og er enn ein perlan í safnið frá snillingunum Ása í Bæ og Oddgeiri Kristjánssyni
- Ó, gamla gatan mín
- ég glaður vitja þín
- og horfnar stundir heilsa mér.
- Hér gekk ég gullin spor
- mín góðu bernskuvor,
- sem liðu burt í leik hjá þér.
- Í sól og sumaryl
- hve sælt að vera til,
- við þekktum hvorki boð né bann
- en kveiktum ástareld,
- sem öll hin rauðu kveld
- í ungum hjörtum okkar brann.
- Dagarnir hurfu með draumsins þyt.
- Dóu mín sumarblóm.
- Nú geymi ég þeirra ljós og lit,
- sem lifandi helgidóm.
- það berast ómar inn,
- ég opna gluggann minn,
- og um mig leikur andi hlýr,
- því æskan fram hjá fer,
- til fundar hraðar sér
- að yrkja lífs síns ævintýr.
- Lag: Oddgeir Kristjánsson
- Texti: Ási í Bæ