„Gaman og alvara“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
{{Þjóðhátíðarlagið|1983|[[Þjóðhátíðarlag (1982|1982]]|[[Ástin bjarta|1984]]}}
:''Á þjóðhátíð Eyjanna allir sér skella
:''Á þjóðhátíð Eyjanna allir sér skella
:''fjörið er mikið og fólkið er margt.
:''fjörið er mikið og fólkið er margt.

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2005 kl. 10:50

Þjóðhátíðarlag
1982 1983 1984
Á þjóðhátíð Eyjanna allir sér skella
fjörið er mikið og fólkið er margt.
á pallana hljómsveitir hljóðfærum smella
og rótarar tengja þau meðan er bjart.
Í dalnum er sungið og spilað
og hlustað á hlægilegt spjall.
En mæðurnar vilja að dætrum sé skilað
svo lendi þær ekki með strákum á svall.
Í Herjólfsdal fólkið nú streymir með tjöldin
mynda þar götur og skúra um leið.
Hjá körlunum pelinn á æði oft völdin
þar ganga þeir aftur sitt unglingaskeið.
Í dalnum er sungið og spilað
og hlustað á hlægilegt spjall.
En mæðurnar vilja að dætrum sé skilað
svo lendi þær ekki með strákum á svall.
Í dalnum er alltaf svo dýrðlega gaman
öllum finnst skemmtunin takast svo vel.
þá utan af landi fólk lendir oft saman
til þess að dansa á lítilli skel.
Í dalnum er sungið og spilað
og hlustað á hlægilegt spjall.
En mæðurnar vilja að dætrum sé skilað
svo lendi þær ekki með strákum á svall.
Nú tjaldborgir falla og þjóðhátíð endar
dalnum er lokað og fólkið fer heim.
Og þakklætiskveðjur eru nefndinni sendar
í útvarpi og blöðum um ofsalegt geim.
Að lokum við syngjum öll saman
og segjum hvert öðru frá því
að allt hér er búið að vera svo gaman
að við getum þess vegna hittst hér á ný.
Lag og texti: Kristinn Bjarnason