„Setjumst hér að sumbli“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Lagið ''Setjumst hér að sumbli'' var fyrsta [[Þjóðhátíð]]arlag Vestmannaeyja, en það var samið af [[Oddgeir Kristjánsson|Oddgeiri Kristjánssyni]] og [[Árni úr Eyjum|Árna úr Eyjum]] fyrir þjóðhátíðina 1933. Það varð kveikjan að því að hafa Þjóðhátíðarlag hverju sinni, en sú hefð hefur haldist fram á daginn í dag.
:Setjumst að sumbli;
:Setjumst að sumbli;
:skyggja fer í Herjólfsdal.
:skyggja fer í Herjólfsdal.

Útgáfa síðunnar 18. júlí 2005 kl. 13:08

Lagið Setjumst hér að sumbli var fyrsta Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja, en það var samið af Oddgeiri Kristjánssyni og Árna úr Eyjum fyrir þjóðhátíðina 1933. Það varð kveikjan að því að hafa Þjóðhátíðarlag hverju sinni, en sú hefð hefur haldist fram á daginn í dag.

Setjumst að sumbli;
skyggja fer í Herjólfsdal.
Drekkum og dönsum;
dunar hátt í klettasal.
Glæstar meyjar og gumafjöld
Guðinn Amor nú tigna í kvöld
Bakkus er betri,
bergjum því á dýrri veig.
Ennþá er eftir-
-út ég drekk í einum teig.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Árni úr Eyjum