„Einar Guttormsson (læknir)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Einar Guttormsson''' var sjúkrahúslæknir 1934 til 1973. Hann er fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddsonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna eldgossins á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja. | '''Einar Guttormsson''' var sjúkrahúslæknir 1934 til 1973. Hann er fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddsonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna eldgossins á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja. | ||
Einar tók mikinn þátt í félagsmálum í Eyjum og átti t.a.m. sæti í bæjarstórn frá árinu 1946 til 1950. Einar var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjakaupstaðar og létu bæjarbúar gera af honum brjóstlíkan á 25 ára starfsafmæli hans. Styttan stendur uppi í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Hann var talinn afburða skurðlæknir og almennt mjög vinsæll sem læknir. Kona hans er Margrét Kristín Pétursdóttir verkamanns á Akureyri Jónatanssonar og eiga þau fimm börn. | |||
---- | ---- |
Útgáfa síðunnar 4. júlí 2005 kl. 14:11
Einar Guttormsson var sjúkrahúslæknir 1934 til 1973. Hann er fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddsonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna eldgossins á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja.
Einar tók mikinn þátt í félagsmálum í Eyjum og átti t.a.m. sæti í bæjarstórn frá árinu 1946 til 1950. Einar var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjakaupstaðar og létu bæjarbúar gera af honum brjóstlíkan á 25 ára starfsafmæli hans. Styttan stendur uppi í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Hann var talinn afburða skurðlæknir og almennt mjög vinsæll sem læknir. Kona hans er Margrét Kristín Pétursdóttir verkamanns á Akureyri Jónatanssonar og eiga þau fimm börn.
Heimildir
- Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.