„Angantýr Elíasson (Hlaðbæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Angantýr Elíasson.jpg|thumb|250px|Angantýr]]
[[Mynd:Angantýr Elíasson.jpg|thumb|250px|Angantýr]]
'''Angantýr Elíasson''' fæddist í Bolugnavík 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var [[Sigríður Björnsdóttir]] frá [[Bólstaðarhlíð]]. Þau bjuggu í [[Hlaðbær|Hlaðbæ]] en byggðu húsið við [[Grænahlíð 8|Grænuhlíð 8]] og fluttu inn árið 1959. Það fór undir hraun.  
 
'''Angantýr Elíasson''' fæddist í Bolungarvík 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var [[Sigríður Björnsdóttir]] frá [[Bólstaðarhlíð]]. Þau bjuggu í [[Hlaðbær|Hlaðbæ]] en byggðu húsið við [[Grænahlíð 8|Grænuhlíð 8]] og fluttu inn árið 1959. Það fór undir hraun.  


Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.
Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.
Lína 27: Lína 28:
:''Meiðurinn höpp og heiður
:''Meiðurinn höpp og heiður
:''hlýtur með sóma nýtur.
:''hlýtur með sóma nýtur.
== Myndir ==
<Gallery>
Mynd:Fa-brunt (52).jpg
Mynd:Fa-brunt (53).jpg
Mynd:Graenahlid 8 gos.jpg
Mynd:Graenahlid 6 8 10.jpg
Mynd:Graenahlid 8 6 4.jpg
Mynd:Graenahlid 8 gosmynd.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 9318.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 12882.jpg
Mynd:Blik1978 aettlidir.bls37.jpg
</gallery>


{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 19. júlí 2012 kl. 12:07

Angantýr

Angantýr Elíasson fæddist í Bolungarvík 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð. Þau bjuggu í Hlaðbæ en byggðu húsið við Grænuhlíð 8 og fluttu inn árið 1959. Það fór undir hraun.

Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.

Angantýr var einnig formaður, byrjaði með Mýrdæling 1941-1943, Hrafnkel goða 1944, Maí 1945, Ófeig II 1946, Sídon sumarið 1946-1955, (hét Vörður 1952-1955.) og Hafdísi ÍS 75 1956-1957. Angantýr átti hlut í Sídon.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Angantý:

Hrafnkeli goða að hafi snýr
horskur að drengjamati
orðvar og prúður Angantýr
enginn veifiskati.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Angantý:

Angantýr á ufsa mó
ýtir þrátt til fanga,
Sídon þó að kylju kló
klappi þétt á vanga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Angantýr straum á strangan
stýrir með brosi hýru.
Hafdís mót kólgu kafi
knýr Elíasar fírinn.
Loðnunginn brims úr boða
bragn veiðir net í lagnar.
Meiðurinn höpp og heiður
hlýtur með sóma nýtur.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.

  • ´Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.