„Björn Ívar Karlsson (yngri)“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Björn Ívar Karlsson''' fæddist 23. febrúar 1985. Hann | ''Sjá [[Björn Ívar Karlsson (eldri)]] fyrir föðurafa Björns Ívars yngri'' | ||
---- | |||
[[Mynd:Björn Ívar yngri.jpg|thumb|250px|Björn Ívar teflir á Reykjavik Open 2012.]] | |||
'''Björn Ívar Karlsson''' fæddist 23. febrúar 1985. Björn Ívar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur [[Karl Björnsson (læknir)|Karls Björnssonar]] læknis og [[Ásta Garðarsdóttir]]. Á unglingsárum var barna- og unglingastarf í skákinni í Eyjum ekkert og skákþroski Björns Ívars fór fram heima hjá honum, þar sem hann eyddi oft allt upp í 8 klukkustundum á dag við skákrannsóknir. Á síðasta ári sínu í grunnskóla sá Björn um skákæfingar í skólanum. Björn gekk svo í Menntaskólann á Akureyri og tók þá til við skákkennslu á vegum Skákfélags Akureyrar ásamt því að sinna kennslu í grunnskólum á Akureyri af og til. Að loknu stúdentsprófi sá Björn um skákkennslu í [[Grunnskóli Vestmannaeyja|Grunnskóla Vestmannaeyja]] auk þess að stjórna skákæfingum efnilegra nemenda í Vestmannaeyja. Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja hefur í nokkur skipti orðið Íslandsmeistari Grunnskólasveita og hefur Björn m.a. fylgt liðinu á Norðurlandamót. | |||
Björn Ívar hefur starfað við Skákakademíu Reykjavíkur síðan í júní 2011 og kennir í mörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu ásamt því að sinna kennslu hjá Skákskóla Íslands. | |||
Björn Ívar hefur teflt á fjölmörgum skákmótum, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hann hefur sjö sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja, tvisvar sinnum Suðurlandsmeistari, ásamt því að hafa landað Íslandsmeistara- og Norðurlandameistaratitli Framhaldsskólasveita með Menntaskólanum á Akureyri. | |||
{{Heimildir| | |||
* Skákakademía Reykjavíkur [http://www.skakakademia.is/um-felagid/starfsmenn/] | |||
}} | |||
[[Flokkur:Skákmenn]] | [[Flokkur:Skákmenn]] | ||
[[Flokkur:Kennarar]] | |||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] | [[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] |
Útgáfa síðunnar 9. ágúst 2012 kl. 15:49
Sjá Björn Ívar Karlsson (eldri) fyrir föðurafa Björns Ívars yngri
Björn Ívar Karlsson fæddist 23. febrúar 1985. Björn Ívar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur Karls Björnssonar læknis og Ásta Garðarsdóttir. Á unglingsárum var barna- og unglingastarf í skákinni í Eyjum ekkert og skákþroski Björns Ívars fór fram heima hjá honum, þar sem hann eyddi oft allt upp í 8 klukkustundum á dag við skákrannsóknir. Á síðasta ári sínu í grunnskóla sá Björn um skákæfingar í skólanum. Björn gekk svo í Menntaskólann á Akureyri og tók þá til við skákkennslu á vegum Skákfélags Akureyrar ásamt því að sinna kennslu í grunnskólum á Akureyri af og til. Að loknu stúdentsprófi sá Björn um skákkennslu í Grunnskóla Vestmannaeyja auk þess að stjórna skákæfingum efnilegra nemenda í Vestmannaeyja. Skáksveit Grunnskóla Vestmannaeyja hefur í nokkur skipti orðið Íslandsmeistari Grunnskólasveita og hefur Björn m.a. fylgt liðinu á Norðurlandamót.
Björn Ívar hefur starfað við Skákakademíu Reykjavíkur síðan í júní 2011 og kennir í mörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu ásamt því að sinna kennslu hjá Skákskóla Íslands.
Björn Ívar hefur teflt á fjölmörgum skákmótum, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hann hefur sjö sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja, tvisvar sinnum Suðurlandsmeistari, ásamt því að hafa landað Íslandsmeistara- og Norðurlandameistaratitli Framhaldsskólasveita með Menntaskólanum á Akureyri.
Heimildir
- Skákakademía Reykjavíkur [1]