„Baldur Johnsen (læknir)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
Hann gekkst fyrir stofnun [[Rotaryklúbbur Vestmannaeyja|Rotarýklúbbs Vestmannaeyja]] og var fyrsti forseti hans. Kona hans var Jóhanna Jóhannsdóttir söngkona og áttu þau fjögur börn.
Hann gekkst fyrir stofnun [[Rotaryklúbbur Vestmannaeyja|Rotarýklúbbs Vestmannaeyja]] og var fyrsti forseti hans. Kona hans var Jóhanna Jóhannsdóttir söngkona og áttu þau fjögur börn.


== Tenglar ==
{{Tenglar|
* [http://www.laeknabladid.is/2006/04/nr/2298 Minningargrein um Baldur í Læknablaðinu]
* [http://www.laeknabladid.is/2006/04/nr/2298 Minningargrein um Baldur í Læknablaðinu]
}}


{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 30. júlí 2007 kl. 09:51

Baldur Garðar Johnsen var héraðslæknir Vestmannaeyja frá 1951 til 1960. Baldur fæddist í Reykjavík þann 22. október 1910 og lést 7. febrúar 2006. Foreldrar hans voru Sigfús M. Johnsen, bæjarfógeti og Sigurveig Guðrún Sveinsdóttir trésmíðameistara í Reykjavík.

Baldur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1930 og síðar cand. med. frá Háskóla Íslands árið 1936. Hann stundaði framhaldsnám erlendis bæði í Englandi, Danmörku og víðar. Baldur var skipaður héraðslæknir árið 1938 í Reykjafjarðar- og Ögurhéraði, síðan Ísafjarðarhéraði árið 1942 og gegndi því þar til hann var skipaður héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1951. Baldur var formaður Læknafélags Vestfjarða 1942 til 1943 og átti sæti í bæjarstjórn Ísafjarðar frá 1944 til 1950.

Hann gekkst fyrir stofnun Rotarýklúbbs Vestmannaeyja og var fyrsti forseti hans. Kona hans var Jóhanna Jóhannsdóttir söngkona og áttu þau fjögur börn.


Tenglar


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.