„Angantýr Elíasson (Hlaðbæ)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 4: | Lína 4: | ||
Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður. | Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður. | ||
Angantýr var einnig formaður með | Angantýr var einnig formaður, byrjaði með Mýrdæling 1941-1943, Hrafnkel goða 1944, Maí 1945, Ófeig II 1946, [[Sídon]] sumarið 1946-1955, (hét Vörður 1952-1955.) og Hafdísi ÍS 75 1956-1957. Angantýr átti hlut í Sídon. | ||
[[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Angantý: | [[Loftur Guðmundsson]] samdi eitt sinn formannsvísu um Angantý: | ||
Lína 32: | Lína 32: | ||
* Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956. | * Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956. | ||
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1995.}} | * ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1995.}} | ||
* ´Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum. | |||
[[Flokkur:Formenn]] | [[Flokkur:Formenn]] |
Útgáfa síðunnar 9. febrúar 2009 kl. 10:25
Angantýr Elíasson fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð. Þau bjuggu í Hlaðbæ en byggðu húsið við Grænuhlíð 8 og fluttu inn árið 1959. Það fór undir hraun.
Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.
Angantýr var einnig formaður, byrjaði með Mýrdæling 1941-1943, Hrafnkel goða 1944, Maí 1945, Ófeig II 1946, Sídon sumarið 1946-1955, (hét Vörður 1952-1955.) og Hafdísi ÍS 75 1956-1957. Angantýr átti hlut í Sídon.
Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Angantý:
- Hrafnkeli goða að hafi snýr
- horskur að drengjamati
- orðvar og prúður Angantýr
- enginn veifiskati.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Angantý:
- Angantýr á ufsa mó
- ýtir þrátt til fanga,
- Sídon þó að kylju kló
- klappi þétt á vanga.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Angantýr straum á strangan
- stýrir með brosi hýru.
- Hafdís mót kólgu kafi
- knýr Elíasar fírinn.
- Loðnunginn brims úr boða
- bragn veiðir net í lagnar.
- Meiðurinn höpp og heiður
- hlýtur með sóma nýtur.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.
- ´Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum.