„Angantýr Elíasson (Hlaðbæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Angantýr Elíasson.jpg|thumb|250px|Angantýr]]
[[Mynd:Angantýr Elíasson.jpg|thumb|250px|Angantýr]]
'''Angantýr Elíasson''' fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var [[Sigríður Björnsdóttir]] frá [[Bólstaðarhlíð]]. Þau bjuggu í [[Hlaðbær|Hlaðbæ]].
'''Angantýr Elíasson''' fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var [[Sigríður Björnsdóttir]] frá [[Bólstaðarhlíð]]. Þau bjuggu í [[Hlaðbær|Hlaðbæ]] en byggðu húsið við [[Grænahlíð 8|Grænuhlíð 8]] og fluttu inn árið 1959. Það fór undir hraun.  


Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.
Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.
Lína 34: Lína 34:


[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Grænuhlíð]]

Útgáfa síðunnar 10. júlí 2007 kl. 08:41

Angantýr

Angantýr Elíasson fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð. Þau bjuggu í Hlaðbæ en byggðu húsið við Grænuhlíð 8 og fluttu inn árið 1959. Það fór undir hraun.

Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.

Angantýr var einnig formaður með mótorbátinn Sídon.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Angantý:

Hrafnkeli goða að hafi snýr
horskur að drengjamati
orðvar og prúður Angantýr
enginn veifiskati.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Angantý:

Angantýr á ufsa mó
ýtir þrátt til fanga,
Sídon þó að kylju kló
klappi þétt á vanga.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Angantýr straum á strangan
stýrir með brosi hýru.
Hafdís mót kólgu kafi
knýr Elíasar fírinn.
Loðnunginn brims úr boða
bragn veiðir net í lagnar.
Meiðurinn höpp og heiður
hlýtur með sóma nýtur.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.