„Sólveig Fríða Einarsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Grein eftir Víglund Þorsteinsson) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 18: | Lína 18: | ||
* ''Læknatal.'' Reykjavík: Þjóðsaga, 2000. | * ''Læknatal.'' Reykjavík: Þjóðsaga, 2000. | ||
}} | }} | ||
[[Flokkur: Ljósmæður]] | [[Flokkur: Ljósmæður]] | ||
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]] |
Útgáfa síðunnar 28. júní 2007 kl. 11:09
Sólveig Fríða Einarsdóttir ljósmóðir fæddist í Vestmannaeyjum 21. ágúst 1945.
Foreldrar hennar voru Einar Guttormsson yfirlæknir, f. 1901, d. 1985 og k.h. Margrét Kristín Pétursdóttir húsmóðir, f. 1914, d. 2001.
Maki (27. des. 1969, skildu): Viðar flugstjóri, f. 20. júní 1945, Hjálmtýs verkstjóra í Keflavík Jónssonar og Guðlaugar dömuklæðskera Jóhannesdóttur frá Seyðisfirði.
Börn: Örlygur, f. 22. febr. 1970; Guttormur Einar, f. 28. marz 1972; Tryggvi, f. 28. apríl 1977; Ingibjörg Elín, f. 14. marz 1985.
Barnsfaðir: Þorsteinn Eyjólfsson rafvirki, f. 29. des. 1937.
Barn: Birgir Eyjólfur, f. 15. apríl 1966.
Nám og störf
Fríða stundaði ensku- og ritaranám í Englandi 1961. Hún lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 26. sept. 1969.
Hún var ljósmóðir í Eyjum í 5 mán. 1971 og í 2 mán. 1980; var ljósmóðir við Fæðingaheimili Reykjavíkur 1973 – 1975, við mæðraskoðun í Kópavogi 1977 – 1979; Landspítalann júní 1981 – 1. maí 1982. Hjúkrunarstörf vann hún á Sólvangi í Hafnarfirði 1970-1971 og St. Jósefs spítala í Hafnarfirði 1977-1979; ljósmóðir á Fæðingaheimili Reykjavíkur til 1981, Landspítalanum 1981-1982, Fæðingaheimili Rvk 1983-1984. Hætti þá störfum vegna slyss. Vann síðan á Landspítalanum sumarið 1987.
Heimildir
- Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Fríða Einarsdóttir, viðtal.
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Læknatal. Reykjavík: Þjóðsaga, 2000.