„Ísleifur Högnason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:
}}
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Kaupmenn]]
[[Flokkur:Kaupmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Þingmenn]]
[[Flokkur:Sjómenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Faxastíg]]

Útgáfa síðunnar 27. júní 2007 kl. 13:01

Ísleifur Högnason, kaupfélagsstjóri og alþingismaður.

Ísleifur Högnason, kaupfélagsstjóri, var landskjörinn þingmaður frá 1937 til 1942. Ísleifur fæddist í bænum Seljalandi undir Eyjafjöllum þann 30. nóvember 1895. Hann lést í Reykjavík 12. júní 1967. Foreldrar Ísleifs voru Högni Sigurðsson útvegsbóndi í Vestmannaeyjum og Marta Jónsdóttir. Ísleifur kvæntist þann 20. ágúst 1921 henni Helgu (fædd 6. desember 1900) Dóttur Rafns Júlíus Símonarssonar formanns í Nesi í Norðfirði og síðar í Vestmannaeyjum og Guðrúnar Gísladóttur. Bjuggu þau á Litlu-Bolsastöðum við Faxastíg.

Ísleifur stundaði tungumálanám í Reykjavík frá 1916 til 1917 hjá Alexander Jóhannessyni sem síðar varð prófessor og Boga Ólafssyni menntaskólakennara. Stundaði verslunarnám og skrifstofustörf í Kaupmannahöfn á árunum 1918 og 1919. Varð kaupfélagsstjóri við Kaupfélagið Drífanda í Vestmannaeyjum 1920-1943. Framkvæmdastjóri Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis í Reykjavík 1943-1953. Ráðinn forstjóri Kaupstefnunnar í Reykjavík og starfaði þar frá 1955 allt til æviloka.



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.