„Karl Gauti Hjaltason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Nýr teksti)
Lína 1: Lína 1:
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður í Vestmannaeyjum er fæddur 31. maí 1959. Kona hans er [[Sigurlaug Stefánsdóttir]]. Þau búa á [[Ásavegur|Ásavegi]] 31.
Karl Gauti Hjaltason var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum 27. maí 1998 og tók við embætti 1. júlí 1998. Karl Gauti fæddist í Reykjavík þann 31. maí árið 1959. Foreldrar hans eru Hjalti Karlsson fyrrum verktaki í Kópavogi og Kolbrún Steinþórsdóttir fyrrum sjúkraliði.
 
Karl Gauti lauk cand. juris frá Háskóla Íslands 1989.  Hann starfaði um langt skeið innan íþróttahreyfingarinnar og hefur setið í Íþróttadómstól ÍSÍ frá 1996 sem nú heitir áfrýjunardómstóll ÍSÍ.  Hann var stofnandi og formaður Karatefélagsins Þórshamars 1979-1985, formaður Karatesambands Íslands í þrettán ár frá 1985-1998.  Þá sat hann í stjórn UMSK 1985-86 og í stjórn íþróttafélagsins Gerplu 1983-86.  Hann hlaut gullmerki ÍSÍ 1998. Hann hefur verið í stjórn Taflfélags Vestmannaeyja frá 2003 og er ritari í stjórn Skáksambands Íslands frá 2006.
 
Karl Gauti var fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslum. í Gullbringusýslu 1989-1990 og starfaði um skeið hjá ríkisskattanefnd.  Karl Gauti var settur sýslumaður á Hólmavík um skeið sumarið 1996. Hann var fulltrúi sýslum. í Árnessýslu og bæjarfógetans á Selfossi, síðar sýslumannsins á Selfossi 1990-1998 þar til hann var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum árið 1998. Karl Gauti starfaði sem formaður yfirkjörstjórnar í Suðurlandskjördæmi frá 1998 síðan í hinu nýja Suðurkjördæmi frá 2003.
 
Kona hans er [[Sigurlaug Stefánsdóttir]], B.Ed. frá K.H.Í. 2006, kennari við Barnaskólann í Vestmannaeyjum. Þau eiga þrjú börn, Alexander f. 1994, Kristinn f. 1997 d. sama ár og Kristófer f. 1997.  Þau búa Ásavegi 31.
From: Karl Gauti Hjaltason


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 16. október 2006 kl. 08:44

Karl Gauti Hjaltason var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum 27. maí 1998 og tók við embætti 1. júlí 1998. Karl Gauti fæddist í Reykjavík þann 31. maí árið 1959. Foreldrar hans eru Hjalti Karlsson fyrrum verktaki í Kópavogi og Kolbrún Steinþórsdóttir fyrrum sjúkraliði.

Karl Gauti lauk cand. juris frá Háskóla Íslands 1989. Hann starfaði um langt skeið innan íþróttahreyfingarinnar og hefur setið í Íþróttadómstól ÍSÍ frá 1996 sem nú heitir áfrýjunardómstóll ÍSÍ. Hann var stofnandi og formaður Karatefélagsins Þórshamars 1979-1985, formaður Karatesambands Íslands í þrettán ár frá 1985-1998. Þá sat hann í stjórn UMSK 1985-86 og í stjórn íþróttafélagsins Gerplu 1983-86. Hann hlaut gullmerki ÍSÍ 1998. Hann hefur verið í stjórn Taflfélags Vestmannaeyja frá 2003 og er ritari í stjórn Skáksambands Íslands frá 2006.

Karl Gauti var fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslum. í Gullbringusýslu 1989-1990 og starfaði um skeið hjá ríkisskattanefnd. Karl Gauti var settur sýslumaður á Hólmavík um skeið sumarið 1996. Hann var fulltrúi sýslum. í Árnessýslu og bæjarfógetans á Selfossi, síðar sýslumannsins á Selfossi 1990-1998 þar til hann var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum árið 1998. Karl Gauti starfaði sem formaður yfirkjörstjórnar í Suðurlandskjördæmi frá 1998 síðan í hinu nýja Suðurkjördæmi frá 2003.

Kona hans er Sigurlaug Stefánsdóttir, B.Ed. frá K.H.Í. 2006, kennari við Barnaskólann í Vestmannaeyjum. Þau eiga þrjú börn, Alexander f. 1994, Kristinn f. 1997 d. sama ár og Kristófer f. 1997. Þau búa að Ásavegi 31. From: Karl Gauti Hjaltason