|
|
The content of the new revision is missing or corrupted. |
Lína 1: |
Lína 1: |
| ''Sjá greinina um [[Árni Johnsen|Árna Johnsen]] fyrir Alþingismanninn.''
| |
|
| |
|
| ----
| |
| '''Árni Jóhannsson Johnsen''' fæddist í Vestmannaeyjum 13. október 1892 og lést árið 1963. Hann var sonur hjónanna [[Sigríður Árnadóttir|Sigríðar Árnadóttur]] og [[Jóhann Jörgen Johnsen|Jóhanns Jörgens Johnsen]] útvegsbónda og hótel- og [[Heilbrigðissaga Vestmannaeyja|sjúkrahúshaldara]] í Vestmannaeyjum. Fyrri kona Árna var [[Margrét Jónsdóttir]]. Eignuðust þau 6 börn, [[Svala Johnsen|Svölu]] húsfreyju í [[Suðurgarður|Suðurgarði]], [[Ingibjörg Johnsen|Ingibjörgu]] kaupkonu, [[Áslaug Johnsen|Áslaugu]] hjúkrunarkonu og trúboða, [[Gísli Johnsen|Gísla]] sjómann, [[Hlöðver Johnsen|Hlöðver]] bankafulltrúa og [[Sigfús Johnsen|Sigfús]] sem var kennari og formaður [[Eyverjar|ungra Sjálfstæðismanna]] í Vestmannaeyjum. Margrét lést eftir 30 ára sambúð þeirra. Seinni kona Árna var Olga Karlsdóttir. Þau eignuðust [[Guðfinnur Johnsen|Guðfinn]] og [[Jóhannes Johnsen|Jóhannes]] auk þess sem Olga átti fjögur börn fyrir.
| |
|
| |
| Árni ólst upp á fjölmennu athafnaheimili. Faðir Árna hafði mörg járn í eldinum. Auk þess að halda hótel og sjúkrahús í Eyjum og einnig var á heimilinu bæði stunduð útgerð og landbúnaður.
| |
|
| |
| Framan af stundaði Árni kaupmennsku, útgerð, búskap og margs konar umboðsstörf. Árni var félagslyndur og hjálpaði bágstöddum mikið. Árni var bindindismaður og var hann æðsti templari í stúkunni Sunnu samfleytt í 25 ár. Einnig var hann í forystusveit Sjálfstæðisflokksins um margra ára skeið. Árni var í fyrstu [[Lúðrasveit Vestmannaeyja]] og söng í kórum um 60 ára skeið.
| |
|
| |
| Árni bjargaði alls 8 mönnum frá drukknum. Hann var sæmdur mörgum heiðursmerkjum og meðal annars fékk hann fjórum sinnum verðlaun úr Carnegie-sjóðnum og var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar.
| |
|
| |
|
| |
| {{Heimildir|
| |
| * ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1963.}}
| |
|
| |
| [[Flokkur:Fólk]]
| |