„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2010/Oceanus Gourmet“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu fyrirtækisins<br> http://www.oceanusgourmet.com | Nánari upplýsingar eru á heimasíðu fyrirtækisins<br> http://www.oceanusgourmet.com | ||
{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}} |
Núverandi breyting frá og með 4. desember 2018 kl. 14:10
Fiskútflutningsfyrirtækið Oceanus Gourmet tók til starfa á vormánuðum 2009 í Vestmannaeyjum. Hlynur Sigmarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði að tilurð fyrirtækisins megi rekja til þess að í framhaldinu af bankahruninu, sem varð í október 2008, hafi hann tekið mörg af sínum málum til endurskoðunar, m.a. hvað hann langaði að starfa við í framtíðinni. Hann hafi alltaf haft áhuga á fisksölu, enda hafi hann unnið við það um tíma, m.a. hjá fisksölufyrirtæki í Reykjavík og á meðan hann bjó um ársskeið í Frakklandi. Hann hefur oftsinnis aðstoðað fólk við fisksölu erlendis, eitt leiddi af öðru og hann hóf að kanna rekstargrundvöll fyrir fisksölufyrirtæki, sem staðsett yrði í Vestmannaeyjum. Áður en Hlynur stofnaði fyrirtækið starfaði hann sem forstöðumaður Fiskistofu í Eyjum. Á vormánuðum 2009 tók hann skrefið, hætti hjá Fiskistofu og stofnaði fiskútflutningsfyrirtækið Oceanus Gourmet. Hann vildi að nafnið á fyrirtækinu myndi tengjast sjónum og gæðum, auk þess sem það þyrfti að vera skiljanlegt í Frakklandi. Oceanus er sjávarguð á grísku og Gourmet er tákn um gæði, að sögn Hlyns. Fyrst um sinn var Hlynur eini starfsmaður félagsins og einn eigandi. Síðar bættust þeir fimm eigendur sem eiga vestmannaeyska fiskvinnslufyrirtækið Godthaab í Nöf, í hluthafahópinn. Fljótlega réði síðan fyrirtækið 2 starfsmenn, þá Arnar Richardsson og Brynjar Guðmundsson, en báðir hafa þeir lokið námi í útvegsrekstarfræði og rekstarfræði. Hlynur hefur lokið diplómanámi í viðskiptafræði. Allir hafa þeir félagar starfað með einum eða öðrum hætti í sjávarútvegi, bæði til sjós og lands. Starfsemi fyrirtækisins byrjaði í húsi Fiskmarkaðs Vestmannaeyja í Friðarhöfn. En í upphafi sumars 2010 færðist starfsemin í húsnæði Godthaab í Nöf á Garðaveg. Fyrirtækin hafa algjörlega aðskilda starfsemi þó þau deili húsnæði.
Fyrirtækið selur einungis ferskar afurðir, þar af fara 99% til Frakklands. Helstu söluafurðir fyrirtækisins eru: þorskhnakkar, ufsahnakkar, ýsuhnakkar og steinsbítsflök. Einnig hefur fyrirtækið selt töluvert af heilum ísvörðum fiski, svokölluðum gámafiski. Nánast allt sem fyrirtækið selur, er sent út með gámaskipum. Fyrirtækið kaupir fisk í beinum viðskiptum af bátum í Eyjum, frá bátum af fastalandinu og af fiskmörkuðum. Einnig sendir fyrirtækið út fjölmargar aðrar tegundir, allt eftir óskum kaupenda. Ávallt er verið að leita leiða til að koma nýjum vörum eða tegundum í sölu erlendis, með því að finna nýja kaupendur á nýjum mörkuðum, töluverð sóknarfæri liggja þar. Hlynur bendir á að þó að hinn hefðbundni gámafiskur sé fluttur til Englands og Þýskalands og seldur þar, þá hafi mikið af því magni endastöð í Frakklandi og lendi þar á borðum franskra neytenda. En löng hefð er fyrir neyslu íslensks fiskmetis í Frakklandi. Fyrirtækið hefur verið að selja tvo til þrjá 40 feta gáma á viku að meðaltali í Frakklandi. Rekstur fyrirtækisins byggist ekki upp á hefðbundinni umboðssölu, heldur kaupir fyrirtækið aðallega fisk á Íslandi og endurselur hann erlendis, bæði unninn og heilan.
Stærsti kaupendahópur fyrirtækisins eru lítil fyrirtæki sem taka lítið magn í einu. Kaupendahópurinn er kominn á annað hundrað viðskiptavini. Rekstur fyrirtækisins hefur vaxið jafnt og þétt. Mikið af þeim fiski sem fyrirtækið selur er keyptur af Godthaab í Nöf og Ísfélagi Vestmannaeyja. Auk þess hefur fyrirtækið selt töluvert af fiski frá útgerðum í Vestmannaeyjum: útgerðarfélaginu Berg-Hugin og af bátunum Berg VE 44, Frá VE 78 og Portlandi VE 97. Hlynur segist þakklátur fyrir þann velvilja sem fyrrgreindir aðilar hafa sýnt Oceanus Gourmet með viðskiptum við fyrirtækið og það traust sem þeir hafa sýnt því frá því að fyrirtækið hóf starfsemi sína. Ef fyrirtækið hefði aðgang að meira hráefni til sölu, þá stæði ekkert í vegi fyrir því að láta fyrirtækið vaxa. Rekstur fyrirtækisins er réttum megin við núllið og segist Hlynur vera ánægður með árangurinn sem orðið hefur á þeim tíma sem félagið hefur starfað. Draumurinn er að fyrirtækið nái að eflast og geti í framtíðinni orðið öflugt sölufyrirtæki sjávarafurða, sem staðsett er í Vestmannaeyjum. Vonast Hlynur til að hægt verða að fjölga um eitt til tvö stöðugildi í framtíðinni. Hlynur segir að fyrirtækið vilji fyrst um sinn ná betri tökum á sölu ferskra afurða áður en það hefur sölu á frosnum afurðum, en ef aðstæður skapist muni félagið skoða vandlega þann möguleika. Miklu máli skiptir að vanda sig vel í þessum rekstri, þar sem orðsporið skiptir öllu máli, segir Hlynur að lokum.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu fyrirtækisins
http://www.oceanusgourmet.com