„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1971/ Fiskikóngur Vestmannaeyja 1971“: Munur á milli breytinga
m (Vpj1985 færði Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1970/ Fiskikóngur Vestmannaeyja 1971 á Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1971/ Fiskikóngur Vestmannaeyja 1971 yfir tilvísun) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
Fiskikóngur Vestmannaeyja 1971

FlSKlKÓNGUR Vestmannaeyja vetrarvertíðina 1971 varð [[Hörður Jónsson]] skipstjóri á Andvara VE 100. Aflaði Hörður og skipshöfn hans 850 tonn í 82 sjóferðum.

Hörður á Andvara heftu- undanfarin ár verið í hópi beztu fiskimanna Vestmannaeyja og síðan vertíðina 1967 ávallt verið meðal 5 aflahæstu formanna.

Hörður Jónsson er ungur maður, knálegur og fylgir manninum snerpa. Hann er fæddur í Reykjavík 7. júní 1937, en ólst upp á Eyrarbakka hjá móðurömmu sinni, Guðrúnu Vigfúsdóttur frá [[Skúmsstaðir|Skúmsstöðum]]. Í föðurætt er Hörður vestfirzkrar ættar.

Hörður byrjaði sjómennsku árið 1954 á gömlum Vestmannaeyjabát, [[Pipp VE-1|Pipp VE]], sem var gerð út frá Eyrarbakka.

Til Vestmannaeyja kom Hörður á vetrarvertíð 1956 og reri þá í 2 vertíðar með [[Oddur Sigurðsson|Oddi]] í [[Dalur|Dal]], fyrst á Jötni, síðan á Sigrúnu. Hefur Hörður verið hér í Vestmannaeyjum síðan, en alkominn fluttist hann til Vestmannaeyja þegar hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík vorið 1959.

Hann var á skólaárunum með [[Kristinn Pálsson (skipstjóri)|Kristni Pálssyni]] á [[Bergur VE-44|Berg]] og að loknu námi stýrimaður hjá honum til haustsins 1962, er hann byrjaði formennsku á Gylfa VE. Var hann með Gylfa í eitt ár, en tók þá við [[Gulltoppur|Gulltoppi]] og var með hann í 2 vertíðir.

Árið 1966 fór Hörður í útgerð; keypti hann í félagi við Ólaf og Símon og vélstjóra sinn, kornungan mann, [[Jóhann Halldórsson]], Andvara (nú Blátind). Bát þennan seldu þeir félagar haustið 1966.

Í janúar 1968 keyptu þeir Hörður og Jóhann þann Andvara, sem nú er, af [[Ingvar Vilhjámsson|Ingvari Vilhjálmssyni]] í Ísbirninum, hét sá bátur þá Hafþór. Þá var rekstrargrundvöllur útgerðarinnar slíkur, að helst enginn vildi kaupa bát og borguðu þeir 4 milljónir króna fyrir bátinn.

Andvari er 100 rúmlesta eikarbátur, byggður í Svíþjóð 1946. Í bátnum eru öll nýjustu fiskileitartæki og 350 hestafla Lister-vél. Hafa þeir félagar endurnýjað og bætt bátinn vel, endurbyggt brú, lúkar, lest og nýtt þilfar hefur verið sett í bátinn.

Þeir hafa aldrei gert út á annað en net og botnvörpu. í stuttu spjalli um liðna vetrarver-tíð lætur Hörður, sem eðlilegt er fyrir hann, allvel af vertíðinni og það er auðfundið að hann er bjartsýnn á fiskimið okkar, þó að vetr-arvertíðin í vetur hafi brugðizt, og verið fiski-treg. „Staðreyndin er að slíkar vertíðar koma alltaf öðru hverju", segir Hörður. | |||
Útdráttur var 21. janúar. Afli var aldrei skarpur, mest rúm 20 tonn í róðri. Andvari reri með net alla vertíðina utan 2 túra, sem hann fór með troll í maí. Vegna fiskitregðu og lítilla aflafrétta hélt Hörður sig að mestu á sama stað, og frá 21. janúar til 20. marz lagði hnn alltaf net sín á sama stað; 15-16 sml. SA af Bjarnar-ey á 100 til 160 faðma dýpi. Hann lagði netin út frá gjá eða dalbotni í landgrunnsbrúninni. | |||
Var dýpi á grynnri enda trossunnar ca. 70 faðmar, en dýpri um 140 faðmar; sést af þessu hve bratt er þarna. Þurfti allt að 200 faðma færi á djúpendann. | |||
En mjög þreytandi og erfiður dráttur getur verið á svo djúpu vatni og straumm oft tals-verður. | |||
Eftir 20. marz flutti Hörður sig vestur af Dröngunum og viku rispu gerði hann í Meðal-landsbugt. Var lítið upp úr því að hafa. Netin voru tekin upp 13. maí. | |||
Það er öllum kunnugt, að um borð í And-vara hefur meðferð aflans alltaf verið mjög góð. Hrósar Hörður ágætri áhöfn sinni, en stýri-maður var Kristinn Sigurðsson frá Löndum, sem byrjaði formennsku nú í vor. | |||
Magn og gceði | |||
aðalfisktegundanna var þanntg: | |||
Af þorski: I. flokkur 302 tonn 61% | |||
II. - 130 tonn 26% | |||
III. - 62 tonn 13% | |||
Þorskur samtals 494 tonn | |||
Af ufsa: I. flokkur 112 tonn 56% | |||
II. - 65 tonn 32% | |||
III. - 23 tonn 12% | |||
Ufsi yfir 90 cm. 40 tonn | |||
Ufsi samtals 240 tonn | |||
Brúttóaflaverðmæti vertíðaraflans var rúmar 7 milljónir kr, en skiptaverðmæti 5.826.000 kr. og hlutur 180 þúsund kr. | |||
Veiðarfæranotkun var mikil, og fóru þeir með um 700 netaslöngur á vertíðinni. Mest lagði Andvari 12 trossur, en var með 11 tross-ur frá byrjun apríl. | |||
Hörður Jónsson hefur reist sér og fjölskyldu sinni einbýlishus við Kirkjuveg. Kona hans er Sjöfn Guðjónsdóttir, ættuð úr Borgarfirði vest-ur; eiga þau fjögur börn. | |||
„Við enun bæði orðin miklir Vestmannaey-ingax, - og áhugamenn um fótbolta!" segir Hörður hlæjandi. | |||
Allir Eyjamenn óska Herði og skipshöfn hans á Andvara til hamingju með árangur starfsins vetrarvertíðina 1971. | |||
Lif heill fiskikóngur Vestmannaeyja 1971. | |||
Útgáfa síðunnar 28. mars 2018 kl. 15:47
FlSKlKÓNGUR Vestmannaeyja vetrarvertíðina 1971 varð Hörður Jónsson skipstjóri á Andvara VE 100. Aflaði Hörður og skipshöfn hans 850 tonn í 82 sjóferðum.
Hörður á Andvara heftu- undanfarin ár verið í hópi beztu fiskimanna Vestmannaeyja og síðan vertíðina 1967 ávallt verið meðal 5 aflahæstu formanna.
Hörður Jónsson er ungur maður, knálegur og fylgir manninum snerpa. Hann er fæddur í Reykjavík 7. júní 1937, en ólst upp á Eyrarbakka hjá móðurömmu sinni, Guðrúnu Vigfúsdóttur frá Skúmsstöðum. Í föðurætt er Hörður vestfirzkrar ættar.
Hörður byrjaði sjómennsku árið 1954 á gömlum Vestmannaeyjabát, Pipp VE, sem var gerð út frá Eyrarbakka.
Til Vestmannaeyja kom Hörður á vetrarvertíð 1956 og reri þá í 2 vertíðar með Oddi í Dal, fyrst á Jötni, síðan á Sigrúnu. Hefur Hörður verið hér í Vestmannaeyjum síðan, en alkominn fluttist hann til Vestmannaeyja þegar hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík vorið 1959.
Hann var á skólaárunum með Kristni Pálssyni á Berg og að loknu námi stýrimaður hjá honum til haustsins 1962, er hann byrjaði formennsku á Gylfa VE. Var hann með Gylfa í eitt ár, en tók þá við Gulltoppi og var með hann í 2 vertíðir.
Árið 1966 fór Hörður í útgerð; keypti hann í félagi við Ólaf og Símon og vélstjóra sinn, kornungan mann, Jóhann Halldórsson, Andvara (nú Blátind). Bát þennan seldu þeir félagar haustið 1966.
Í janúar 1968 keyptu þeir Hörður og Jóhann þann Andvara, sem nú er, af Ingvari Vilhjálmssyni í Ísbirninum, hét sá bátur þá Hafþór. Þá var rekstrargrundvöllur útgerðarinnar slíkur, að helst enginn vildi kaupa bát og borguðu þeir 4 milljónir króna fyrir bátinn.
Andvari er 100 rúmlesta eikarbátur, byggður í Svíþjóð 1946. Í bátnum eru öll nýjustu fiskileitartæki og 350 hestafla Lister-vél. Hafa þeir félagar endurnýjað og bætt bátinn vel, endurbyggt brú, lúkar, lest og nýtt þilfar hefur verið sett í bátinn.
Þeir hafa aldrei gert út á annað en net og botnvörpu. í stuttu spjalli um liðna vetrarver-tíð lætur Hörður, sem eðlilegt er fyrir hann, allvel af vertíðinni og það er auðfundið að hann er bjartsýnn á fiskimið okkar, þó að vetr-arvertíðin í vetur hafi brugðizt, og verið fiski-treg. „Staðreyndin er að slíkar vertíðar koma alltaf öðru hverju", segir Hörður.
Útdráttur var 21. janúar. Afli var aldrei skarpur, mest rúm 20 tonn í róðri. Andvari reri með net alla vertíðina utan 2 túra, sem hann fór með troll í maí. Vegna fiskitregðu og lítilla aflafrétta hélt Hörður sig að mestu á sama stað, og frá 21. janúar til 20. marz lagði hnn alltaf net sín á sama stað; 15-16 sml. SA af Bjarnar-ey á 100 til 160 faðma dýpi. Hann lagði netin út frá gjá eða dalbotni í landgrunnsbrúninni.
Var dýpi á grynnri enda trossunnar ca. 70 faðmar, en dýpri um 140 faðmar; sést af þessu hve bratt er þarna. Þurfti allt að 200 faðma færi á djúpendann.
En mjög þreytandi og erfiður dráttur getur verið á svo djúpu vatni og straumm oft tals-verður.
Eftir 20. marz flutti Hörður sig vestur af Dröngunum og viku rispu gerði hann í Meðal-landsbugt. Var lítið upp úr því að hafa. Netin voru tekin upp 13. maí.
Það er öllum kunnugt, að um borð í And-vara hefur meðferð aflans alltaf verið mjög góð. Hrósar Hörður ágætri áhöfn sinni, en stýri-maður var Kristinn Sigurðsson frá Löndum, sem byrjaði formennsku nú í vor.
Magn og gceði aðalfisktegundanna var þanntg:
Af þorski: I. flokkur 302 tonn 61% II. - 130 tonn 26% III. - 62 tonn 13% Þorskur samtals 494 tonn Af ufsa: I. flokkur 112 tonn 56% II. - 65 tonn 32% III. - 23 tonn 12% Ufsi yfir 90 cm. 40 tonn Ufsi samtals 240 tonn Brúttóaflaverðmæti vertíðaraflans var rúmar 7 milljónir kr, en skiptaverðmæti 5.826.000 kr. og hlutur 180 þúsund kr. Veiðarfæranotkun var mikil, og fóru þeir með um 700 netaslöngur á vertíðinni. Mest lagði Andvari 12 trossur, en var með 11 tross-ur frá byrjun apríl. Hörður Jónsson hefur reist sér og fjölskyldu sinni einbýlishus við Kirkjuveg. Kona hans er Sjöfn Guðjónsdóttir, ættuð úr Borgarfirði vest-ur; eiga þau fjögur börn. „Við enun bæði orðin miklir Vestmannaey-ingax, - og áhugamenn um fótbolta!" segir Hörður hlæjandi. Allir Eyjamenn óska Herði og skipshöfn hans á Andvara til hamingju með árangur starfsins vetrarvertíðina 1971. Lif heill fiskikóngur Vestmannaeyja 1971.