„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2005/Ólíkar ferjur“: Munur á milli breytinga
Karibjarna2 (spjall | framlög) Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Ólíkar ferjur'''
| '''Ólíkar ferjur'''
[[Mynd:Að ofan Herjólfur í Þorláshöfn. Að neðan.png|250px|thumb|Að ofan Herjólfur í Þorlákshöfn. Að neðan bíla- og farþegaferja í Mósabik]] | ||
Vilm. Víðir Sigurðsson, faðir séra Þorvaldar sóknarprests við Landakirkju, sendi ritstjóra meðfylgjandi myndir fyrir skömmu.
| Vilm. Víðir Sigurðsson, faðir séra Þorvaldar sóknarprests við Landakirkju, sendi ritstjóra meðfylgjandi myndir fyrir skömmu.

Í bréfi sem fylgir segir Víðir m.a.:
| Í bréfi sem fylgir segir Víðir m.a.:

Útgáfa síðunnar 1. ágúst 2017 kl. 10:27
Vilm. Víðir Sigurðsson, faðir séra Þorvaldar sóknarprests við Landakirkju, sendi ritstjóra meðfylgjandi myndir fyrir skömmu.
Í bréfi sem fylgir segir Víðir m.a.:
„Við Jóhanna fengum tækifæri til þess að heimsækja Mabútó, höfuðborg Mósambik, í nóvember og stuttu síðar þurftum við að skreppa til Íslands og heimsóttum þá að sjálfsögðu Eyjarnar og fólkið okkar þar.
Í Mósambik fórum við í smá ferðalag þar sem við þurftum að taka ferju yfir tiltölulega mjótt sund og viku síðar sigldum við með Herjólfi til Vestmannaeyja. Mér datt í hug að setja þessar tvær ferjur saman á blað og senda þér til gamans. Að vísu er ekki saman að jafna siglingaleiðunum en það er langt á milli skipanna. Eg er hræddur um að Sigmar (Sigmar Þór Sveinbjörnsson) hefði sagt eitthvað ef hann hefði átt að skoða þá minni.“
Vilm. Víðir var kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík frá 1968 til 2000 en síðan hefur hann kennt siglingafræði og skyld fög í Namibíu.
Faðir Víðis og afi Þorvaldar okkar var Sigurður Magnússon, skipstjóri og útgerðarmaður, á Víði SU frá Eskifirði. Um og upp úr 1960 var hann hér í Eyjum með Víði á nokkrum vetrarvertíðum og fiskaði mikið. Ýmist var hann kallaður Siggi á Víði eða Siggi á hvítu peysunni sem hann var þekktur af. Víðir SU var alltaf auðþekktur í flotanum vegna góðrar umhirðu svo um var talað, útgerðarmanni og skipstjóra til sóma.
Hinn 16. júní n.k. hefði Sigurður orðið 100 ára.