„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1968/Sjómannavals“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: Sjómannavals
''Við brimsorfna kletta''
''bárurnar skvetta''
''hvítfextum öldum''
''á húmdökkum kvöldum,''
''sj...) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 18: | Lína 18: | ||
'''[[Ási í Bæ]]'''
| '''[[Ási í Bæ]]'''

{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}} |
Útgáfa síðunnar 15. janúar 2016 kl. 13:12
Við brimsorfna kletta
bárurnar skvetta
hvítfextum öldum
á húmdökkum kvöldum,
sjómanninn laða og seiða.
Skipanir gjalla,
skipstjórar kalla,
vélarnar emja,
æpa og lemja,
á haf skal nú haldið til veiða.
Vertu sæl mey, ég kem aftur er kvöldar á ný,
gleymdu mér ei, þó að brimið sér bylti með gný.
Eigir þú yl, handa sjómanni er sjöstjarnan skín
þá stendur hann brosandi í stórsjó og byl
við sinn stjórnvöl og hugsar til þín.