„Guðmundur Guðlaugsson frá Sólbrekku“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Leiðrétti og bætti við texta)
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Karl Vignir Þorsteinsson. ''Blik, ársrit Vestmannaeyja''. 1969.}}
* Karl Vignir Þorsteinsson. ''[[Blik]], ársrit Vestmannaeyja''. 1969.}}


[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 7. júlí 2006 kl. 11:42

Guðmundur Guðlaugsson fæddist 12. júlí 1885. Hann bjó á Faxastíg 21 í nær hálfan fimmta tug, í húsi sem nefnist Sólbrekka. Lífsförunautur Guðmundar var Una Jónsdóttir skáldkona sem lést 29. febrúar 1960. Guðmundur var hæglátur maður og hjálpsemin við aðra var honum í blóð borin.

Árið 1921 kom Guðmundur á vertíð til Vestmannaeyja til að freista gæfunnar. Þar vann hann við aðgerð og keypti fæði hjá Unu Jónsdóttur eins og svo margir aðrir vertíðarmenn í Eyjum á þeim tíma. Tveimur árum seinna fluttist hann til hennar og þar bjuggu þau síðan saman ógift í 37 ár, þar til Una lést.

Guðmundur var jafnan kenndur við konu sína og kallaður Unu-Gvendur.


Heimildir

  • Karl Vignir Þorsteinsson. Blik, ársrit Vestmannaeyja. 1969.