„Örnefni“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 3: Lína 3:
Á [[Heimaey]] má finna örnefni á borð við [[Sölvaflá]], [[Illugaskip]], [[Páskahellir]] og [[Háhá]]. Í úteyjum má sjá [[Austursvelti]], [[Höskuldarhellir|Höskuldarhelli]], [[Þolimæði]] og [[Bunki|Bunka]], svo að dæmi séu nefnd.

== Örnefnaferð um Eyjar ==
Fólk sem kemur til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið, hvort heldur með flugi eða [[Herjólfur|Herjólfi]], tekur líklegast fyrst eftir [[Einidrangur|Einidrangi]], sem stendur eitt og sér úti í hafi. Um hálfa leið milli Einidrangs og Heimaeyjar má finna [[Þrídrangar|Þrídranga]], sem eru í raun fjórir talsins: Stóridrangur (öðru nafni Háidrangur), Þúfudrangur og Klofadrangur. Fjórði drangurinn, sem sést ekki frá Heimaey, er líklega nafnlaus.  

Þegar að komið er að Heimaey þá sjást [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]] og [[Ystiklettur]] nyrst og austast á eyni. í Miðkletti má sjá [[Selhellir|Selhelli]], og [[Latur]] stendur þar hjá. [[Elliðaey]] stendur fyrir norðaustan Ystaklett, og [[Faxasker]] skýtur upp kollinum þar á milli. Sunnan við Elliðaey má sjá [[Bjarnarey]], en þær eru einu úteyjarnar sem eru austan við Heimaey.

=== Höfnin ===
Þegar farið er inn um innsiglinguna er [[Skans]]fjara sunnan megin, en [[Klettsvík]] norðan megin á milli fjallanna þriggja. Þegar farið er framhjá [[Hringskersgarð|Hringskersgarður]] má sjá [[Stafkirkjan|Stafkirkjuna]] á Skansinum fast upp við [[Heimaeyjargosið|Nýja Hraunið]], ásamt gamla [[Hervirkið|Hervirkinu]]. í Heimakletti má sjá Hörgareyri.

Lína 13: Lína 15:
Þegar að litið er til norðurs frá höfninni má sjá [[Þrælaeiði]], en til vesturs eru [[Stóra-Klif]]ið, [[Litla-Klif]], [[Molda]] og [[Háhá]]. Til austurs má sjá nýja hraunið, og sunnan við það eru [[Eldfell]] og [[Helgafell]].

[[Vestmannaeyjabær|Miðbær Vestmannaeyja]] er byggður á aflíðandi brekku sem kallað var [[Breiðholt]] áður fyrr, en [[Breiðholtsbraut]] heitir [[Vestmannabraut]] í dag, og var hún lengsta gata bæjarins fyrir gos.
=== Bærinn ===
[[Vestmannaeyjabær|Miðbær Vestmannaeyja]] er byggður á aflíðandi brekku sem kallað var [[Breiðholt]] áður fyrr, en [[Breiðholtsbraut]] heitir [[Vestmannabraut]] í dag, og var hún lengsta gata bæjarins fyrir gos. [[Götur í Vestmannaeyjabæ]] eru 66 talsins, og eru þær allar malbikaðar nema [[Reglubraut]]. [[Heiðarvegur]] og [[Skólavegur]] eru helstu göturnar sem ganga frá norðri til suðurs, en [[Strandvegur]], Vestmannabraut og [[Kirkjuvegur]] þvera þær frá austri til vesturs. Kirkjuvegur sveigir niður til norðurs og gengur meðfram hrauninu niður að [[Sjómannasund]]i.
 
=== Fjallganga um norðurkletta ===
Þegar að gengið er meðfram Strandvegi til vesturs frá höfninni er fljótlega komið að [[Sprangan|Spröngunni]]. Þaðan er auðvelt að ganga upp á [[Há]], og þaðan upp á [[Háhá]] og [[Molda]]. Áður fyrr tíðkaðist það að síga frá Molda niður í [[Fiskhellar|Fiskhella]] og þurka þar fisk. Ef gengið er til norðurs á toppi [[Molda]] má komast út í [[Náttmálaskarð]], en þaðan er greið leið um [[Eggjar]] yfir á [[Dalfjall]]. Á eggjum Dalfjalls eru krossgötur: Hægt er að halda til norðurs niður á [[Ufsaberg]] og þaðan niður í [[Stafsnes]], eða til vesturs upp á [[Blátind]], eða einfaldlega til suðurs, framhjá [[Saltaberg]]i og niður ofan í [[Herjólfsdalur|Herjólfsdal]].
 
Í miðri Herjólfsdal er [[Tjörnin]], en hún er tengd vatnsuppsprettu sem er sunnar í dalnum, nær Molda. Ef farið er vestur frá brunninum sem við vatnsuppsprettuna má sjá [[Gamli Golfskálinn|Gamla Golfskálann]] í suðri undir Fiskhellum. Þá er komið að [[landnám]]sbænum, þar sem talið er að [[Herjólfur Bárðarson]] hafi búið. Þá segir sagan um [[Vilborg og Hrafnarnir|Vilborgu og Hrafnanna]] frá því þegar að byggð lagðist í eyði þar.
 
=== Meðfram hamrinum ===
Til vesturs yfir golfvöllinn má finna [[Kaplagjóta|Kaplagjótu]] innundir Dalfjalli. Suður af Kaplagjótu er [[Mormónapollur]] þar sem að mormónar voru skírðir í stórum stíl um miðja 19. öld. Gengið er svo meðfram hamrinum til Suðurs, en þá er hægt að sjá á góðum degi út í úteyjarnar [[Álsey]], [[Brandur|Brand]], [[Geirfuglasker]], [[Suðurey]], [[Surtsey]] og [[Súlnasker]].
 
[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Stubbur]]
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Örnefni]]