„Draumblóm Þjóðhátíðarnætur“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 39: Lína 39:
::Lag: [[Þorgeir Guðmundsson]]
::Lag: [[Þorgeir Guðmundsson]]
::Texti: [[Árni Johnsen]]
::Texti: [[Árni Johnsen]]
[[Flokkur:Þjóðhátíðarlög]]

Núverandi breyting frá og með 14. júní 2006 kl. 09:34

Þjóðhátíðarlag
1968 1969 1970
Ég bíð þér að ganga í drauminn minn
og dansa með mér í nótt
um undraheima í hamrasal
og hamingjan vaggar þér ótt.
Nætur og dagar líða þar
við lokkandi söngva klið
frá fólki við bjargið og fuglum við brún
og fagnandi hafsins nið.
Þar líða saman
og læðast svo rótt
ljóð ungrar ástar
og hlusta á ævintýr hvísla hljótt.
Ég elska spor þín og lífsbros þitt
sem leikur við mína þrá
eins eldurinn glettist frjáls við glóð
og flöktir við himintjöld blá.
Og þegar staldrar nótt við dag
stöndum við sæl og ein,
þá sigla um náttlaus veraldar haf
vonin og ást okkar hrein.
Þannig slá hjörtun
sinn hamingjudraum
og hamrabörn ung
heilsa framtíðarinnar ljúfa draum.
Og þó að þú vaknir við draumsins brá
og viljir dansa á ný
þá hlustaðu aðeins á ljóðsins óm
sem lifir hug þínum í.
þá veröldin roðnar við augnalot þín
og andar með vorsins hljóm,
því allt sem hún þráði var þróttur þinn og
þeyrinn við draumsins blóm.
Lag: Þorgeir Guðmundsson
Texti: Árni Johnsen