„Sprang“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum) | |||
Lína 1: | Lína 1: | ||
Sem að líkum lætur fóru menn ekki óþjálfaðir í fjallaferðir, sér í lagi ekki þeir sem síga áttu í bjarg. Því fundu menn sér góða staði heima fyrir þar sem hægt var að æfa sig í fjallaklifri og sigi. Einn þekktastur slíkra staða í Vestmannaeyjum | [[Mynd:Sprang.jpg|thumb|300px|Sprangað]] | ||
Sem að líkum lætur fóru menn ekki óþjálfaðir í fjallaferðir, sér í lagi ekki þeir sem síga áttu í bjarg. Því fundu menn sér góða staði heima fyrir þar sem hægt var að æfa sig í fjallaklifri og sigi. Einn þekktastur slíkra staða í Vestmannaeyjum er undir [[Skiphellar|Skiphellum]]. | |||
Þarna voru allar aðstæður hinar ákjósanlegustu til að þjálfa verðandi fjallagarpa í öllum þeim kúnstum sem nota þurfti í fjallaferðum, svo sem | Þarna voru allar aðstæður hinar ákjósanlegustu til að þjálfa verðandi fjallagarpa í öllum þeim kúnstum sem nota þurfti í fjallaferðum, svo sem lærvað, tábragði, riði, klifri og sprangi. Enn í dag þykir sá ekki maður með mönnum sem ekki getur sprangað skammlaust ofan af Almenningi, sem er breið klettasylla u.þ.b. þrjá metra frá jörðu. | ||
Þegar menn verða leiknir í íþróttinni taka við efri syllur með ýmsum nöfnum, svo sem | Þegar menn verða leiknir í íþróttinni taka við efri syllur með ýmsum nöfnum, svo sem Stígvél, Gras og Efsta tó. Þá leika þeir bestu í íþróttinni einnig ýmsar kúnstir í loftinu, hnita hringi og steypa sér kollhnísa með miklum tilþrifum. | ||
Það er nokkuð fastur liður þegar tekið er á móti ferðamönnum í dag að farið er með þá inn í Spröngu og þeim gefinn kostur á að spreyta sig á einni flugferð, að vísu þó ofan af lægstu syllu. | Það er nokkuð fastur liður þegar tekið er á móti ferðamönnum í dag að farið er með þá inn í Spröngu og þeim gefinn kostur á að spreyta sig á einni flugferð, að vísu þó ofan af lægstu syllu. | ||
[[Flokkur:Íþróttir]] |
Núverandi breyting frá og með 17. júlí 2006 kl. 13:32
Sem að líkum lætur fóru menn ekki óþjálfaðir í fjallaferðir, sér í lagi ekki þeir sem síga áttu í bjarg. Því fundu menn sér góða staði heima fyrir þar sem hægt var að æfa sig í fjallaklifri og sigi. Einn þekktastur slíkra staða í Vestmannaeyjum er undir Skiphellum.
Þarna voru allar aðstæður hinar ákjósanlegustu til að þjálfa verðandi fjallagarpa í öllum þeim kúnstum sem nota þurfti í fjallaferðum, svo sem lærvað, tábragði, riði, klifri og sprangi. Enn í dag þykir sá ekki maður með mönnum sem ekki getur sprangað skammlaust ofan af Almenningi, sem er breið klettasylla u.þ.b. þrjá metra frá jörðu.
Þegar menn verða leiknir í íþróttinni taka við efri syllur með ýmsum nöfnum, svo sem Stígvél, Gras og Efsta tó. Þá leika þeir bestu í íþróttinni einnig ýmsar kúnstir í loftinu, hnita hringi og steypa sér kollhnísa með miklum tilþrifum.
Það er nokkuð fastur liður þegar tekið er á móti ferðamönnum í dag að farið er með þá inn í Spröngu og þeim gefinn kostur á að spreyta sig á einni flugferð, að vísu þó ofan af lægstu syllu.