„Björn Ívar Karlsson (yngri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
(viðbót)
 
(4 millibreytingar ekki sýndar frá 2 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''Björn Ívar Karlsson''' fæddist 23. febrúar 1985. Hann varð Skákmeistari Vestmannaeyja árið 2001.
''Sjá [[Björn Ívar Karlsson (eldri)]] fyrir föðurafa Björns Ívars yngri''
 
----
[[Mynd:Björn Ívar yngri.jpg|thumb|250px|Björn Ívar teflir á Reykjavik Open 2012.]]
 
'''Björn Ívar Karlsson''' fæddist 23. febrúar 1985. Björn Ívar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur [[Karl Björnsson (læknir)|Karls Björnssonar]] læknis og [[Ásta Garðarsdóttir|Ástu Garðarsdóttur]]. Á unglingsárum var barna- og unglingastarf í skákinni í Eyjum ekkert og skákþroski Björns Ívars fór fram heima hjá honum, þar sem hann eyddi oft allt upp í 8 klukkustundum á dag við skákrannsóknir. Á síðasta ári sínu í grunnskóla sá Björn um skákæfingar í skólanum. Björn gekk svo í Menntaskólann á Akureyri og tók þá til við skákkennslu á vegum Skákfélags Akureyrar ásamt því að sinna kennslu í grunnskólum á Akureyri af og til. Að loknu stúdentsprófi sá Björn um skákkennslu í [[Grunnskóli Vestmannaeyja|Grunnskóla Vestmannaeyja]] auk þess að stjórna skákæfingum efnilegra nemenda hjá [[Taflfélag Vestmannaeyja|Taflfélagi Vestmannaeyja]]. Skáksveit Barnaskólans í Vestmannaeyjum (síðar Grunnskóli Vestmannaeyja) hefur í nokkur skipti orðið Íslandsmeistari Barnaskólasveita og fylgdi Björn sveit barnaskólans á Norðurlandamótið á Álandseyjum 2008.
 
Björn Ívar hefur starfað við Skákakademíu Reykjavíkur síðan í júní 2011 og kennir í mörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu ásamt því að sinna kennslu hjá Skákskóla Íslands.
Björn Ívar hefur teflt á fjölmörgum skákmótum, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hann hefur fimm sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja, tvisvar sinnum Suðurlandsmeistari, ásamt því að hafa landað Íslandsmeistara- og Norðurlandameistaratitli Framhaldsskólasveita með Menntaskólanum á Akureyri.
 
{{Heimildir|
* Skákakademía Reykjavíkur [http://www.skakakademia.is/um-felagid/starfsmenn/]
}}


[[Flokkur:Skákmenn]]
[[Flokkur:Skákmenn]]
[[Flokkur:Kennarar]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]

Núverandi breyting frá og með 7. mars 2013 kl. 15:59

Sjá Björn Ívar Karlsson (eldri) fyrir föðurafa Björns Ívars yngri


Björn Ívar teflir á Reykjavik Open 2012.

Björn Ívar Karlsson fæddist 23. febrúar 1985. Björn Ívar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, sonur Karls Björnssonar læknis og Ástu Garðarsdóttur. Á unglingsárum var barna- og unglingastarf í skákinni í Eyjum ekkert og skákþroski Björns Ívars fór fram heima hjá honum, þar sem hann eyddi oft allt upp í 8 klukkustundum á dag við skákrannsóknir. Á síðasta ári sínu í grunnskóla sá Björn um skákæfingar í skólanum. Björn gekk svo í Menntaskólann á Akureyri og tók þá til við skákkennslu á vegum Skákfélags Akureyrar ásamt því að sinna kennslu í grunnskólum á Akureyri af og til. Að loknu stúdentsprófi sá Björn um skákkennslu í Grunnskóla Vestmannaeyja auk þess að stjórna skákæfingum efnilegra nemenda hjá Taflfélagi Vestmannaeyja. Skáksveit Barnaskólans í Vestmannaeyjum (síðar Grunnskóli Vestmannaeyja) hefur í nokkur skipti orðið Íslandsmeistari Barnaskólasveita og fylgdi Björn sveit barnaskólans á Norðurlandamótið á Álandseyjum 2008.

Björn Ívar hefur starfað við Skákakademíu Reykjavíkur síðan í júní 2011 og kennir í mörgum grunnskólum á Reykjavíkursvæðinu ásamt því að sinna kennslu hjá Skákskóla Íslands.

Björn Ívar hefur teflt á fjölmörgum skákmótum, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hann hefur fimm sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja, tvisvar sinnum Suðurlandsmeistari, ásamt því að hafa landað Íslandsmeistara- og Norðurlandameistaratitli Framhaldsskólasveita með Menntaskólanum á Akureyri.


Heimildir

  • Skákakademía Reykjavíkur [1]