„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1977/Illugahellir og Illugaskip“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: <big><big>Illugahellir og lllugaskip</big></big><br> Í krikanum norðan við gatnamótin, þar sem Höfðavegur og Illugagata mætast, eru tveir hraunhólar. Í syðri hólnum er sm...) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 7: | Lína 7: | ||
(Úr Sögum og sögnum úr Ve.)<br> | (Úr Sögum og sögnum úr Ve.)<br> | ||
[[Mynd:Screen Shot 2017-06-22 at 08.54.19.png|700px|center|thumb|Til vinstri: Illugaskip en Illugahellir er í hólnum til hægri. (Ljósm.: Guðm. Sigf.)]] | |||
{{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}} | {{Sjómannadagsblað Vestmannaeyja}} |
Núverandi breyting frá og með 22. júní 2017 kl. 08:59
Illugahellir og lllugaskip
Í krikanum norðan við gatnamótin, þar sem Höfðavegur og Illugagata mætast, eru tveir hraunhólar. Í syðri hólnum er smáskúti, sem nefndur er Illugahellir. Nyrðri hóllinn er nefndur Illugaskip, og er hann ekki ólíkur skipi á hvolfi. Sagt er, að einhvern tíma hafi maður, sem Illugi hét, búið í hellinum, og dragi hann nafn af því. Átti hann að hafa flutt skip sitt þangað og sé það nyrðri hraunhóllinn.
Aðrir segja að landvættur ein, er Illugi hét, hafi búið í hellinum, og sé Illugaskip steinnökkvi hennar.
Þá hafa verið uppi sagnir um það að séra Illugi Jónsson, sem prestur var að Ofanleiti árin 1733 — 1745, hafi látið gera helli þennan til að menn gætu leitað þar hælis í óveðrum á leið sinni upp fyrir Hraun, en hellirinn er stuttan spöl vestan við veginn.
(Úr Sögum og sögnum úr Ve.)