Eyrún Edda Óskarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eyrún Edda Óskarsdóttir, húsfreyja fæddist 2. október 1942 að Heimagötu 30.
Foreldrar hennar Valtýr Óskar Ólafsson frá Garðstöðum, skipstjóri, f. 11. ágúst 1914, d. 24. febrúar 1983, og kona hans Rut Ágústsdóttir frá Varmahlíð, húsfreyja, f. 13. september 1920, d. 13. september 1989.

Börn Rutar og Óskars:
1. Ágúst Pálmar Óskarsson, f. 12. desember 1939 í Varmahlíð.
2. Ólöf Auðbjörg Óskarsdóttir, f. 28. júlí 1941 á Heimagötu 30.
3. Eyrún Edda Óskarsdóttir, f. 2. október 1942 á Heimagötu 30.
4. Eygló Óskarsdóttir, f. 3. ágúst 1953 að Sólhlíð 5.

Eyrún Edda var með foreldrum sínum, á Heimagötu 30 og við Sólhlíð 5.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur 1959 í Gagnfræðaskólanum í Eyjum.
Þau Sigurður Sveinn giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Kópavogi.

I. Maður Eyrúnar Eddu, (7. janúar 1967), er Sigurður Sveinn Jónsson bakari, f. 7. janúar 1941 á Hjalteyri í Eyjafirði. Foreldrar hans Jón Möller Sigurðsson, sjómaður, verkamaður, f. 6. nóvember 1900, d. 2. nóvember 1982, og kona hans Kristín Sveinsdóttir, húsfreyja, f. 29. september 1904, d. 24. ágúst 1982.
Börn þeirra:
1. Aldís Sigurðardóttir, f. 18. febrúar 1968 í Rvk.
2. Auðbjörg Sigurðardóttir, garðyrkjufræðingur, f. 23. ágúst 1971.
3. Óskar Sigurðsson, f. 4. apríl 1972 í Rvk. Kona hans Berglind Mjöll Jónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.