Eygló Óskarsdóttir (Sólhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Eygló Óskarsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Eygló Óskarsdóttir frá Sólhlíð 5, húsfreyja fæddist þar 3. ágúst 1953.
Foreldrar hennar Valtýr Óskar Ólafsson frá Garðstöðum, skipstjóri, f. 11. ágúst 1914, d. 24. febrúar 1983, og kona hans Rut Ágústsdóttir frá Varmahlíð, húsfreyja, f. 13. september 1920, d. 13. september 1989.

Börn Rutar og Óskars:
1. Ágúst Pálmar Óskarsson, f. 12. desember 1939 í Varmahlíð.
2. Ólöf Auðbjörg Óskarsdóttir, f. 28. júlí 1941 á Heimagötu 30.
3. Eyrún Edda Óskarsdóttir, f. 2. október 1942 á Heimagötu 30.
4. Eygló Óskarsdóttir, f. 3. ágúst 1953 að Sólhlíð 5.

Eygló var með foreldrum sínum, í Sólhlíð 5.
Þau Ragnar giftu sig 1975, eignuðust tvö börn. Þau búa í Lækjasmára í Kópavogi.

I. Maður Eyglóar, (8. nóvember 1975), er Ragnar Lárusson, matreiðslumeistari, f. 15. júní 1953 í Rvk. Foreldrar hans Lárus M. Knudsen Guðmundsson, bifvélavirki, f. 19. júní 1924, d. 17. maí 1994, og Jónína Níeljohníusdóttir, f. 3. desember 1923, d. 24. september 2000.
Börn þeirra:
1. Hildur Ósk Ragnarsdóttir, húsfreyja, f. 14. september 1977 í Rvk. Fyrrum maður hennar Viktor Gunnlaugsson.
2. Ólafur Ragnarsson, rekstrarstjóri, f. 16. apríl 1980 í Rvk. Kona hans Erna Bryndís Einarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.