Adolf Hafsteinn Þórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Adolf Hafsteinn Þórsson bifvélavirki fæddist 23. apríl 1966.
Foreldrar hans Þór Ísfeld Vilhjálmsson frá Burstafelli við Vestmannabraut 65a, vélstjóri, skipstjóri, starfsmannastjóri, leiðbeinandi á námskeiðum tengdum sjávarafla og mannauðsstjórnun, stjórnarmaður, stjórnarformaður Sparisjóðsins, f. 30. nóvember 1945, og kona hans Sólveig Adolfsdóttir, húsfreyja, verslunarmaður, skrifstofumaður, f. 1. október 1946.

Börn Sólveigar og Þórs:
1. Adolf Hafsteinn Þórsson bifvélavirki, f. 23. apríl 1966. Kona hans er María Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir.
2. María Þórsdóttir bókari, f. 6. janúar 1972. Fyrrum maður hennar Einar Guðnason.
3. Helga Sigrún Þórsdóttir sérkennari, umsjónarmaður, f. 15. nóvember 1978. Maður hennar Jónas Guðbjörn Jónsson.

Adolf Hafsteinn lærði bifvélavirkjun og vann við iðn sína.
Þau María hófu sambúð, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Brimhólabraut.

I. Sambúðarkona Adolfs er María Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir, húsfreyja, f. 5. mars 1970.
Börn þeirra:
1. Sólveig Adolfsdóttir, f. 15. júní 1992 í Eyjum. Sambúðarmaður Elmar Hrafn Óskarsson.
2. Sigurbjörn Adolfsson, f. 18. desember 1997 í Eyjum. Fyrrum sambúðarkona hans Lísbet Elva Gylfadóttir.
3. Þorgerður Katrín Ísfeld Adolfsdóttir, f. 2. júní 2004 í Rvk.
4. Helgi Þór Adolfsson, f. 11. apríl 2006 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.