Njáll Mýrdal Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Njáll Mýrdal)
Fara í flakk Fara í leit

Njáll Mýrdal Árnason tölvunarfræðingur, hefur unnið lagerstörf og verið bifreiðastjóri við vöruflutninga hjá Alvotech í Rvk, fæddist 12. maí 1980.
Foreldrar hans Árni Marz Friðgeirsson sjómaður, vélstjóri, f. 23. mars 1954, og kona hans Björk Mýrdal Njálsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 9. september 1949, d. 21. mars 2021.

Börn Bjarkar og Árna:
1. Sigríður Una Árnadóttir, f. 26. mars 1976.
2. Njáll Mýrdal Árnason, f. 12. maí 1980.
Barn Bjarkar:
3. Ruth Guðmundsdóttir húsfreyja, umhverfis- og skipulagsfræðingur, f. 30. október 1967.

Þau Inga Lára giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Njáls er Inga Lára Sigurjónsdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 21. ágúst 1982. Foreldrar hennar Sigurjón Rúnar Jakobsson, f. 16. apríl 1953, d. 4. júlí 2018, og Ingibjörg Bjarnadóttir, f. 14. júlí 1952.
Börn þeirra:
1. Emilía Björk Njálsdóttir, f. 6. febrúar 2017.
2. Eva Katrín Njálsdóttir, f. 31. júlí 2010.
3. Elísa Ósk Njálsdóttir, f. 31. júlí 2010.
4. Eydís Una Njálsdóttir, f. 4. nóvember 2018.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.