Marinó Guðmundsson (kaupmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Marinó Guðmundsson)
Fara í flakk Fara í leit
Marinó til vinstri og Jóhann Gíslason frá Uppsölum.

Marinó Guðmundsson fæddist að Skógum undir Eyjafjöllum þann 21. júní 1912 og lést 21. desember 1962. Foreldrar hans voru Guðmundur Kjartansson og Margrét Bárðardóttir að Skógum undir Eyjafjöllum. Hann ólst upp í Gíslakoti undir Eyjafjöllum hjá fósturforeldrum vegna slæmrar heilsu móður sinnar. Marinó kvæntist Önnu Jónsdóttur þann 2. október 1937. Þau eignuðust einn son, Trausta. Anna lést tæpu 21 ári eftir dauða húsbónda síns.

Fljótlega eftir fermingu fór Marinó til Eyja á vertíðir. Var hann snemma eftirsóttur skipverji. Eftir að hafa verið háseti í nokkur ár gerðist hann formaður. Hann lauk prófi í Stýrimannaskólanum árið 1947 og strax að því loknu réðist hann sem háseti á togara Bæjarútgerðar Vestmannaeyja.

Eftir að hann kom af sjónum hóf hann rekstur húsgagnaverslunar með syni sínum. Hann var rómaður fyrir heiðarleik og hjálpsemi, bæði við störf til sjós og í landi.



Heimildir