„Jón Jónsson í Gvendarhúsi“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:


Margar sögur eru tilgreindar af Jóni og bera flestar með sér að hann hefur bæði verið vel greindur og sömuleiðis orðheppinn.
Margar sögur eru tilgreindar af Jóni og bera flestar með sér að hann hefur bæði verið vel greindur og sömuleiðis orðheppinn.
:
 
 
:''Eitt sinn sem oftar kom Jón í Gvendarhúsi inn í Edinborgarbúðina sem var í eigu Gísla J. Johnsens kaupmanns.  Svo bar við að kaupmaður var sjálfur í búðinni.  Hann tók Jóni af mestu alúð, bauð honum inn fyrir búðarborðið og vildi sýna honum ýmsar vörur í búðinni.  Þetta fágæta tækifæri jók á forvitni Jóns svo að hann gerðist alláleitinn um að handleika vörur í hillum, opna skúffur og gægjast í þær svo að kaupmanni fór að þykja nóg um.
:''„Já, og hvað er svo í þessari skúffu, Gísli minn?“ spurði Jón og bar sig til að opna hana.  „Það er forvitni,“ sagði kaupmaðurinn og fannst nú Jóni sem mesta alúðin væri horfin úr röddinni.  „Nú, þá hefur mér skjátlast,“ sagði Jón.  „Ég sem hélt að það væri ágirnd.“
 
:''Öðru sinni var Jón staddur í Edinborgarbúð.  Brynjúlfur Sigfússon organisti var þar einnig staddur.  Jón bóndi hafði hönd á mörgu sem hann sá eins og fyrri daginn.  „Láttu þetta vera,“ sagði Brynjúlfur organisti,  „þú ert óhreinn á höndunum.“  „Þær þóttu ekki óhreinar þegar ég greiddi þér atkvæði til þess að vera organisti,“ læddi Jón út úr sér.
 
:''Eitt sinn varð Jóni í Gvendarhúsi það á að reka handlegginn í stefnið á skipinu Gideon er hann gekk fram hjá því í Hrófunum.  Þá varð honum að orði:  „Fyrirgefðu Gideon minn, ekki ætlaði ég að meiða þig.“
1.401

breyting

Leiðsagnarval