„Sjóslys“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
3.246 bætum bætt við ,  14. júlí 2005
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 25: Lína 25:


===Átta farast þegar smábátur sekkur, Vestmannaeyjar missa héraðslækni sinn===
===Átta farast þegar smábátur sekkur, Vestmannaeyjar missa héraðslækni sinn===
Eftir að [[spænska veikin]] geisaði á Íslandi var hert mjög á öllu eftirliti á skipum sem komu til landsins. Var það gert að reglu að læknir skyldi fara um borð og taka skýrslu af skipstjóra um heilbrigðisástand áhafna. Hvergi var þó erfiðara að koma þessu eftirliti á en í Vestmannaeyjum. Þangað komu mjög mörg skip, þó flest yfir vetrartímann, er veður var leiðinlegt og erfitt var að komast um borð. Þó gegndu Vestmannaeyjalæknarnir [[Halldór Gunnlaugsson]] , [[Páll V. G. Kolka]] og seinna meir [[Ólafur Ó. Lárusson]] þessu starfi af mikilli skyldurækni. Þetta gekk allt stórslysalaust þar til 16. desember 1924. Þann dag komu nokkur skip til Vestmannaeyja en var frekar leiðinlegt í veðri. Um miðjan dag sást til e. s. Gullfossar, skip Eimskipafélags Íslands, og það var að koma til lands frá útlöndum. Samkvæmt reglum þurfti að senda lækni um borð í skipið til að kanna heilbrigðisástandið um borð. Varð Halldór Gunnlaugsson fyrir valinu að fara um borð.
Gullfoss hafði varpað akkerum fyrir utan [[Þrælaeiði|Eiðið]] , enda hafði veðrið magnast þegar leið á daginn og var orðinn töluverður sjógangur. En þó svo væri þá var undirbúið bátur til að fara út í Gullfoss. Fjórir menn fóru oftast með lækninum í þessar ferðir en búist var við erfiðri ferð þannig að ákveðið var að taka fjóra í viðbót með. Síðan var árabáturinn setur á flot og er mennirnir sem hjálpuðu bátsverjum að koma bátnum á flot litu við brá þeim heldur betur í brún. Báturinn og mennirnir níu sem höfðu verið í honum, höfðu færst á kaf. Ekki er vitað hvernig þetta gerðist en þykkir líklegast að alda hafi riðið yfir bátinn og fært hann í kaf. Einn unglingspiltur hafði náð að halda sér í bátinn og reyndi að gera tilraun til að synda til lands. En hann barst í burtu vegna mikils straums og kviku við Eiðið.
Mennirnir sem höfðu aðstoðað við að setja bátinn á flot reyndu hvað sem þeir gátu til að bjarga þeim en þeir höfðu engin tæki til þess. Skipverjar á Esjunni, sem var líka undir akkeri, urðu vitni að slysinu og settu strax út bát og héldu á vettvang. Þeim tókst að ná piltinum sem hékk utan í bátnum og Halldóri Gunnlaugssyni sem var á floti í sjónum. Þeir voru teknir um borð og sent var skeyti til lands og beðið um læknishjálp. Páll V. G. Kolka kom á slysstaðinn skömmu eftir að slysið átti sér stað. Var þá strax reynt að komast í Esjuna með bát sem hafði verið dreginn úr höfninni. Þegar komið var í Esjuna athugaði Páll mennina. Unglingspilturinn var kominn til meðvindundar en miklar lífgunartilraunir á Halldóri báru ekki árangur. Þann dag létust alls átta manns.
Þeir sem létust voru Halldór Gunnlaugsson héraðslæknir, Snorri Þórðarson í Steini, Guðmundur Þórðarson Akri, sem var bróðir Snorra, Bjarni Bjarnason frá Hofelli, Guðmundur Eyjólfsson frá [[Miðbær|Miðbæ]], Kristján Valdason frá Sandgerði, Ólafur Gunnarsson frá Vík og Guðmundur Guðjónsson frá [[Kirkjubær|Kirkjubæ]]. Sá sem lifði af heitir Ólafur Vilhjálmsson frá Múla í Vestmannaeyjum.
1.756

breytingar

Leiðsagnarval