„Sundkennsla“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
2.180 bætum bætt við ,  30. júní 2005
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 20: Lína 20:
== Miðhúsalaug ==
== Miðhúsalaug ==


Eftir að sjóveita kom til sögunnar
Eftir að sjóveita kom til sögunnar árið 1931 komst hreyfing á sundlaugarmál í Vestmannaeyjum, enda löngu orðið tímabært að taka til hendinni og koma upp sundlaug. Með sjóveitu var hægur vandi að fá ferskann sjó úr sjógeyminum sem staðsettur var á Skanskinum og veita honum í sundlaug. Voru menn á því að reisa skyldi stóra og rúmgóða sundlaug, ekki minni en 20 x 10 metra. Sundlaug sem þessi hlyti að kosta mikið fé, sér í lagi þar sem hiti þyrfti laugina upp. Þá var kreppa ríkjandi í landinu á þessum árum sem hjálpaði ekki til. Menn gerðu ráð fyrir hitaveitu frá rafstöðinni sem hitaði sjóinn í 23 gráður. Veitan yrði 275 metra löng og myndi kosta 3300 krónur.


Árið 1933 var hafist handa við að byggja sundlaugina sem Finnbogi R. Þorvaldsson, verkfræðingur, teiknaði. Árið áður hafði Björgunarfélagið undirbúið framkvæmdirnar, en treysti sér ekki til að standa standa fyrir framkvæmdum eitt og sér. Þá lagði félagið 1300 krónur til framkvæmda. Sumarið 1933 lagði fjárhagsnefnd til að bæjarsjóður tæki að sér að sjá um framkvæmdir. Var það samþykkt. Ásamt Björgunarfélaginu studdu íþróttafélögin í Vestmannaeyjum framkvæmdir, en skorti fé til að láta af hendi rakna. Árið 1934 samþykkti ríkisstjóður að styðja við sundlaugarbygginguna með fjárframlagi sem næmi allt að helmingi, en þó ekki meira en 12 þúsund krónur. Fjárhagsáætlun hljóðaði hins vegar upp á 35 þúsund krónur. Kostnaður við laugina fór aftur á móti upp í 40 þúsund krónur árið 1939.
Laugin var síðan opnuð 14. nóvember 1934 með sjómannanámskeiði. Almenningur gat hins vegar nýtt sér  sundlaugina sumarið á eftir.
Miðhúsalaug var steinstypt, 20 x 12 metrar að stærð. Dýpt laugarinnar var einn metri að norðan og tveir að sunnan. Finnbogi hafði lagt til að lengd laugarinnar yrði 25 metrar, en ekki var fallist á það vegna kostnaðar. Kefar við laugina voru fimm talsins. Sjórinn í lauginni var hitaður upp í 22-28 gráður, allt eftir veðurfari. Seinna fékk laugin heitt vatn frá Rafstöð Vestmannaeyja. Til að fylla laugina þurfti 330 tonn af sjó




943

breytingar

Leiðsagnarval