„Heimaeyjargosið“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
(tengill á nýja grein allir í bátana)
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 1: Lína 1:
''Þann 23. janúar 2007 var opnaður [http://www.heimaslod.is/gos gosmyndavefur á Heimaslóð]. Þar er að finna fjölda myndbanda og ljósmynda ásamt ítarlegum lýsingum tengdum gosinu.''

-----
-----
[[Mynd:Kirkjubaer tobbatun 21 01 1973.jpg|thumb|Þarna hófst gosið aðeins sólarhring eftir að þessi mynd var tekin.]]
[[Mynd:Kirkjubaer tobbatun 21 01 1973.jpg|thumb|500px|Þarna hófst gosið aðeins sólarhring eftir að þessi mynd var tekin.]]
[[Mynd:Gos 44.jpg|thumb|Eldgos á Heimaey 1973]]
[[Mynd:Gos 44.jpg|thumb|500px|Eldgos á Heimaey 1973]]

'''Heimaeyjargosið''' hófst 23. janúar 1973 og var því lýst lokið þann 3. júlí sama ár. Gosið er fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi. Giftusamlegri björgun á fólki og stórum hluta af eignum er minnst þegar gosið er rifjað upp. Þó að nú á 21. öldinni rísi upp kynslóð, sem ekki upplifði atburðina örlagaríku, eru þeir þó greyptir í hjörtu Eyjamanna. Minningarnar lifa og munu fara frá manni til manns. Þannig hefur gosið grópað huga Eyjamanna og er eitt af því sem gerir íbúa Heimaeyjar einstaka.

== Undanfari ==
== Undanfari ==
[[Mynd:1973.1.jpg|thumb|Eldgos á Heimaey 1973]]
[[Mynd:1973.1.jpg|thumb|500px|Eldgos á Heimaey 1973]]
[[Mynd:1973.5.jpg|thumb|Eldgos á Heimaey 1973]]
[[Mynd:1973.5.jpg|thumb|500px|Eldgos á Heimaey 1973]]
[[Mynd:1973.4.jpg|thumb|Eldgos á Heimaey 1973]]
[[Mynd:1973.4.jpg|thumb|500px|Eldgos á Heimaey 1973]]
Það voru bjartsýnir Eyjamenn sem horfðu fram á veginn við áramót 1972-1973. Sjórinn hafði þá verið gjafmildur og einnig kaupendur fisksins. Í nýrri og enn stærri landhelgi, þá nýstækkaðri úr 12 sjómílum í 50, höfðu Vestmannaeyingar veitt vel. Árið 1972 áttu Vestmannaeyingar 8,4% af útflutningsverðmæti landsmanna. Nóg atvinna var í plássinu og íbúarnir aldrei verið fleiri, eða 5273 þann 1. des. 1972. Þetta bjartsýna fólk fór því að sofa áhyggjulaust að kvöldi mánudags 22. janúar 1973.

Lína 16: Lína 15:

== Gos hefst ==
== Gos hefst ==
[[Mynd:Austurbær.jpg|thumb|right|Austurbærinn fyrir gos]]
[[Mynd:Austurbær.jpg|thumb|500px|right|Austurbærinn fyrir gos]]
[[Mynd:Tún 1973.jpg|thumb|right|Húsið Tún, 24.janúar 1973]]
[[Mynd:Tún 1973.jpg|thumb|500px|right|Húsið Tún, 24.janúar 1973]]
[[Mynd:1973.5.jpg|thumb|right|25. janúar 1973]]
[[Mynd:1973.5.jpg|thumb|500px|right|25. janúar 1973]]

Loftskeytamaðurinn [[Hjálmar Guðnason]] bað vin sinn [[Carl Ólafur Gränz|Ólaf Gränz]] að koma í miðnæturgöngutúr rétt áður en gosið hófst. Löbbuðu þeir félagar vanalegan rúnt, með bryggjunni, ströndinni, í átt að [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] og svo upp á [[Helgafell]]. Hin tilkomumesta sýn birtist þeim þegar þeir skoðuðu bæinn af toppi Helgafells. Jörðin hreinlega opnaðist og eldtungur skutust upp á yfirborðið. Á sama tíma var hringt í lögregluna og henni tilkynnt að jarðeldur væri kominn upp austan Kirkjubæjar. Vantrúuð lögreglan fór á stjá og sá strax hvað var í gangi. Gos var þá hafið á 1600 metra langri sprungu og magnaðist mjög á fyrstu mínútunum. Fólk var þá vaknað í austurbænum og byrjað að vekja nágranna. Var þá kveikt á brunalúðrum, og á innan við klukkutíma frá upphafi gossins var bærinn vaknaður og streymdi fólk niður á bryggju. Flestum ber saman um að upphaf gossins hafi verið þegar klukkuna vantaði um fimm mínútur í tvö.

Lína 26: Lína 25:
[[Guðjón Ármann Eyjólfsson]] lýsir fyrstu gosnóttinni mjög ítarlega í bók sinni ''Vestmannaeyjar, byggð og eldgos''. Þar er einnig farið í sögur margra annarra af gosinu, en örvilnun fólks, skelfing og hugrekki kemur fram vel í mörgum frásögnunum.  

[[Mynd:Gos 26.jpg|thumb|Gosið í febrúar]]
[[Mynd:Gos 26.jpg|thumb|500px|Gosið í febrúar]]
Meðal frásagna í bók Guðjóns frá fyrstu gosnóttinni er frásögn [[Kristján Kristófersson|Kristjáns Kristóferssonar]] og [[Þóra Valdimarsdóttir|Þóru Valdimarsdóttur]] á [[Kirkjuból|Kirkjubóli]]. Þóra segir svo frá: „Ég var háttuð, en ekki sofnuð, seint um kvöldið. Ég vissi ekki hvað klukkan var. Þá verð ég allt í einu vör við ansi mikinn kipp, jarðskjálftakipp. Ég hentist fram úr rúminu og kveikti ljósið og lít á klukkuna. Þá er klukkan tíu mínútur gengin í tvö. Það var mitt fyrsta verk að fara niður í kjallara til að vita hvort þetta sé í „fýrnum“, af því alltaf er maður hræddur um miðstöðina. En þegar ég ætla að opna eldhúshurðina, sem liggur að stiganum niður í kjallara, þá finn ég strax, að eitthvað er að. Hurðin er orðin skekkt í og ég má taka fast í til að geta opnað. Þá bregður mér svolítið. Ég fór samt niður stigann og sé, að allt er í lagi með miðstöðina og fer upp. En mér líkar ekki þessi titringur á ofnunum. Það er þessi eilífi nötringur og einkennilegheit í „fýrnum“ og ég fer niður aftur.“

Kristján maður hennar segist þá vakna og fara niður og athuga með miðstöðina. „Ég heyrði nú eitthvað undarlegt hljóð sem ég kannaðist ekki við. Mér fannst hljóðið vera í ofnunum, eitthvert titringshljóð. Ég fer síðan norður í verkstæðisherbergi sem var við hliðina á miðstöðvarherberginu en heyri ekkert þar. Slekk ég síðan á „fýrnum“ og geng upp.

Lína 37: Lína 36:
Bæjarbúar söfnuðust fljótt og vel niður á [[Vestmannaeyjahöfn|bryggju]]. Mikið þakkarefni er veðrið sem verið hafði daginn fyrir gosið. Þá höfðu allir bátar komið í land vegna óveðurs en hafði skánað til muna með kvöldinu. Loftskeytastöðin hafði kallað út hið alþjóðlega neyðarkall "may-day" og tilkynnt að byrjað væri að gjósa í bænum. Bátar, sem voru að veiðum í nágrenni eyjanna, hættu þegar og héldu til lands að ná í fólk og hjálpa til.  

[[Mynd:Kirkgos1.jpg|thumb|Landakirkja með eldfjallið í bakgrunni.]]
[[Mynd:Kirkgos1.jpg|thumb|500px|Landakirkja með eldfjallið í bakgrunni.]]
Fyrsti báturinn lagði af stað með fólk um kl. hálf þrjú, aðeins um hálftíma eftir upphaf eldgossins. Af því má sjá að þrátt fyrir að gosið hefði komið óvænt voru menn í viðbragðsstöðu. Bátarnir tóku frá 50 manns og upp í 400. Sjóferðin var ekki skemmtileg. Vont var í sjóinn og ofan á [[sjóveiki]] og vanlíðan, bættust við áhyggjur um framtíð bæjarins, ættingja og vina, húsa og lífsviðurværis. Björgunaraðgerðir fóru þó almennt vel fram og undir morgun komu bátar til Þorlákshafnar þar sem tekið var á móti flóttafólkinu. Langflestir voru fluttir með skipum en nokkur hundruð manns með flugvélum. Þeir sem fóru með flugvélunum voru þó aðallega eldri borgarar og sjúklingar. Allur tiltækur flugfloti, jafnt stórar og smáar vélar, fór strax um nóttina frá Reykjavík. Að morgni fyrsta gosdags var búið að flytja alla íbúa eyjunnar upp á meginlandið, að undanskildum 200-300 manns sem urðu eftir til að sinna þeim verkum sem þurfti að vinna.  

Strax og ljóst var að björgunaraðgerðir á fólki höfðu heppnast sem skyldi var hafist handa við að bjarga því sem bjarga varð af eignum fólks. Hafist var handa í austurbænum, þeim hluta sem stóð næst eldsupptökum. Hjólin tóku að snúast eftir nokkra daga. Björgunarsveitir komu ofan af landi og fljótt varð til samfélag. Samfélag þar sem flestir unnu kauplaust, fengu einungis mat og húsaskjól í laun og ekkert var öruggt varðandi starfsumhverfi. Sjálfboðaliðar úr trésmiðafélögum í Reykjavík negldu fyrir glugga sem sneru að eldgosinu. Nokkur hús féllu saman vegna gjalls á þökum og því fóru trésmiðirnir einnig að styrkja húsþök, en stúdentar ruddu gjalli af þökunum. Nóg var að gera og mikið álag á lúnu hjálparfólki. Heilu búslóðirnar voru fluttar upp á land eða komið í örugga geymslu. [[Bílaeign]] Vestmannaeyinga var mikil og hátt í þúsund bílum var komið upp á land. Með ótrúlegu þrekvirki náðist að koma í veg fyrir milljarðatjón á eignum bæjarbúa.

[[Mynd:Glóð..JPG|thumb|Glóð]]
[[Mynd:Glóð..JPG|thumb|500px|Glóð]]
Nýbyggða [[Sjúkrahús Vestmannaeyja|sjúkrahúsið]] var á þessum tíma með flatt þak, og var jarðýtu komið fyrir ofan á þakinu til þess að moka gjalli ofan af því svo að það myndi síður leggjast saman. Austan til á sjúkrahúsinu var hægt að keyra bílum alveg upp á þakið á gjallinu, en byggingin er um þrjár hæðir. Svipaða sögu er að segja af mörgum öðrum húsum, en unnið var við að sópa gjallinu af húsunum eins og best var unnt, til þess að minnka skemmdirnar.

Lína 59: Lína 58:
Öfugt við bjartsýni Eyjamanna í byrjun ársins 1973 voru jarðfræðingar ekki bjartsýnir varðandi hið nýja eldgos. Fyrstu dagana var gosið dæmigert sprungugos. Sprungurnar voru 1600 metra langar og röðuðu sér þar 30-40 gígar. Hraunflygsur sáust þeytast upp í 600 metra hæð og hraunkúlur flugu að minnsta kosti 2500 metra upp í loftið. Stundum rigndi glóandi flygsum í svo miklu magni og svo títt á ytri veggi eldfjallsins að ýmsir héldu að um hraunstrauma væri að ræða. Hraunkvikan leitaði út í sjó og kom það sér vel fyrir byggðina og innsiglinguna. En það var aðeins fyrstu dagana. Ekki leist mönnum á blikuna í byrjun febrúar þegar neðansjávarsprunga opnaðist við hafnarmynnið. Frá 4.-20. febrúar var höfninni lokað og umferð bönnuð. [[Vestmannaeyjahöfn|Höfnin]] lokaðist þó ekki en hraunstraumurinn reyndi aftur á taugar manna með straumi í hafnarmynnið frá 9. mars. Þá hafði hraunkælingin sitt að segja.

[[Mynd:Andstæður.jpg|thumb|left|Andstæður hraunsins.]]
[[Mynd:Andstæður.jpg|thumb|100px|left|Andstæður hraunsins.]]
Í lok febrúar safnaðist hraun saman norðan við gígmynnið. Varnargarðar höfðu verið byggðir til varnar bænum og höfninni. Hraunið tók að streyma í tungu frá gígmynninu og ógnaði varnargörðunum. Ekki var hægt að dæla á hrauntunguna sökum þess að vegalengdin frá sjó var of mikil. Þess vegna gerðist það aðfaranótt 18. mars að varnargarðurinn brast með þeim afleiðingum að 10 hús fóru undir. Næstu daga fóru enn fleiri hús undir hraun. Verst var áhlaup 300 metra breiðrar tungu fimmtudagskvöldið 22. mars sem fór yfir 70 hús og stöðvaðist niðri á Heimagötu. Ótrúlegt fyrirbæri varð til í marsmánuði, [[Flakkarinn]]. Þetta fyrirbæri, risavaxinn hraunklettur, brotnaði úr eldkeilunni og flaut ofan á hrauninu í átt að höfninni. Flakkarinn, svokallaði, nam staðar áður en hann olli alltof miklum usla.  

== Eyjaskeggjar á föstu landi ==
== Eyjaskeggjar á föstu landi ==
[[Mynd:Eldgosteikning.jpg|thumb|Eldgosið í augum níu ára drengs.]]
[[Mynd:Eldgosteikning.jpg|thumb|100px|Eldgosið í augum níu ára drengs.]]
Strax fyrstu gosnóttina hófst mikil skipulagning á því hvernig fólksflutningunum skyldi háttað. Einhversstaðar þurfti að koma rúmlega 5.000 manns fyrir uppi á landi. Á þessum tíma voru Vestmannaeyingar 2,5% landsmanna og því mikið verkefni fyrir höndum að koma börnum í skóla, fólki í vinnu og útvega húsnæði. [[Viðlagasjóður]] og ríkisstjórnin sáu til þess að Vestmannaeyingar fengu allt það nauðsynlegasta. Ýmiss félagasamtök hjálpuðu til og gaf t.d. [[Aðventsöfnuðurinn|Aðventistar]] fatnað þeim sem þurftu. Samhugur og samúð landsmanna var hjá Eyjamönnum. Rauði krossinn átti mikinn þátt í hjálparstarfinu og hjálpaði fólki að koma sér fyrir á fastalandinu. Fljótlega bárust rausnarleg hjálparframlög í ýmsum myndum víðs vegar að úr heiminum. Erlendar ríkisstjórnir gáfu peninga og fjársafnanir voru í Noregi og Færeyjum. Frá Norðurlöndum og Kanada voru keypt 550 tilbúin hús og þeim komið fyrir víðs vegar um land, þó einkum suðvestanlands.

Lína 76: Lína 75:

== Hvað á fellið að heita? ==
== Hvað á fellið að heita? ==
[[Mynd:Hraun06.jpg|thumb|Svona var um að litast á hrauninu í maí 1973.]]
[[Mynd:Hraun06.jpg|thumb|500px|Svona var um að litast á hrauninu í maí 1973.]]
Fljótlega var farið að tala um nafn á nýja fellið og sýndist sitt hverjum. Lýst var eftir nafni í stuttri grein í Morgunblaðinu og tillögum rigndi inn, bæði í Eyjapistil og lesendabréfum til dagblaðanna. Margir vildu nefna það Kirkjufell vegna Kirkjubæjanna, aðrir voru mun frumlegri og vildu nefna fellið Þrym, Gribbu, Bessa, Gám, Glám, Hroll, Spáfell eða Bæjarfell. Alls bárust á þriðja tug nafna.

Lína 85: Lína 84:

== Goslok ==
== Goslok ==
[[Mynd:Uppgröftur..JPG|thumb|Hér er verið að varna hitnaleiðni til vesturs.]]
[[Mynd:Uppgröftur..JPG|thumb|500px|Hér er verið að varna hitnaleiðni til vesturs.]]
Í lok apríl fór eyjan að grænka. Þrátt fyrir gjall og sót kom [[lundi|lundinn]] og hreinsaði holur sínar. Suðurhluti eyjunnar hafði sloppið ágætlega og því var hann fljótur að grænka. Bjartsýni á goslok dafnaði. Virkni eldgíga var minni í maí, og í júní mældist ekkert hraunrennsli frá gígnum. Því voru þessir mánuðir notaðir í hreinsunarstarf. Götur voru mokaðar og grasfræi sáð í jarðveginn. Aðstæður voru ekki góðar í byrjun uppgræðslunnar en með sumrinu náðist góð uppgræðsla. Síðasta goshrinan stóð yfir í aðeins nokkrar mínútur þann 26. júní. Almannavarnanefnd tilkynnti þann 3. júlí að gosinu væri lokið með eftirfarandi tilkynningu; „Að mati sérfræðinga og vísindamanna er það staðreynd, að gígurinn er lokaður og gosvirkni í fellinu hætt. Þar sem ekki er hins vegar enn laust við gasmengun í miðhluta bæjarins, einkanlega á svæði vestur af Heiðarvegi, upp að Hásteinsvegi, Hvítingavegi og Birkihlíð, eru því þeir, sem hug hafa á að setjast að á umræddu svæði, beðnir að hafa samband við Almannavarnanefnd Vestmannaeyja í síma 99-6911 eða 99-6912 og fá þar upplýsingar um ástand með tilliti til gasmengunar. Nefndin vill jafnframt ítreka að foreldrar láti ekki börn sín vera fylgdarlaus á umræddu svæði.“

Lína 99: Lína 98:

== Lífið eftir gos ==
== Lífið eftir gos ==
[[Mynd:Eldfell sed af nyja hrauninu.jpg|thumb|right|Eldfellið í fagurri vetrarkápu]]
[[Mynd:Eldfell sed af nyja hrauninu.jpg|thumb|500px|right|Eldfellið í fagurri vetrarkápu]]
Margir af íbúum Vestmannaeyja ætluðu að hverfa heim strax daginn eftir upphaf gossins. Morgunblaðið greindi frá því þann 26. janúar að gosið væri í rénun og Eyjamenn gætu komist fljótt heim. Þetta gaf mönnum von um að komast fljótt heim. Eflaust hafa margir misst vonina eftir því sem lengra leið á gosið og settust því að uppi á landi.  

[[Mynd:Eldfell-toppur.jpg|thumb|Hraunið séð af toppi Eldfells.]]
[[Mynd:Eldfell-toppur.jpg|thumb|500px|Hraunið séð af toppi Eldfells.]]
Flutningur fjölskyldna aftur til Vestmannaeyja hófst fyrir alvöru í ágúst. Um miðjan september var búið að flytja um 1200 bæjarbúa til Eyja og í nóvember 1973 höfðu rúmlega 2000 manns snúið til baka. Þeirra beið mikil og erfið vinna. Af 1350 húsum bæjarins, fóru 417 eignir undir hraun og aðrar 400 skemmdust að einhverju eða miklu leyti. Menn voru yfirleitt bjartsýnir á framtíðina og hófu uppbyggingu fljótt og örugglega. Margar fjölskyldur og einstaklingar fluttu ekki til baka. Ástæður þess voru margar, t.d. treysti sér ekki til að flytja aftur þar sem hús þeirra voru komin undir hraun eða það fékk góða atvinnu og húsnæði á meginlandinu. Þann 6. september var svo aftur kveikt á götuljósunum í Eyjum.

Það voru þó einhverjir jákvæðir hlutir fyrir bæjarfélagið sem fylgdu þessum náttúruhamförum. Fyrir gos hafði uppfyllingarefni verið stórt vandamál. Hvergi var efni að fá og þurfti mikið jarðrask til þess að útvega efni. Í gosinu kom upp nægilegt uppfyllingarefni fyrir allar framkvæmdir. [[Heimaey]] stækkaði um 2,2 km² í eldgosinu og býður þessi viðbót upp á óteljandi möguleika varðandi framkvæmdir, ferðamennsku og útivist. Hraunið gerði innsiglingu í höfnina enn betri og lokaði á suðaustan-vindinn sem vildi herja á höfnina. Hraunið sem menn héldu að myndi eyðileggja höfnina gerði hana að einni þeirra allra bestu á landinu.

[[Mynd:Horft_af_hrauninu.JPG|thumb|Ótrúlegt þrekvirki var unnið við hreinsun bæjarins. Svona var umhorfs í ágúst 1973.]]
[[Mynd:Horft_af_hrauninu.JPG|thumb|500px|Ótrúlegt þrekvirki var unnið við hreinsun bæjarins. Svona var umhorfs í ágúst 1973.]]
Sterk bönd binda Eyjamenn við Heimaey. Eldgosið þar gerði Vestmannaeyinga að enn meiri Vestmannaeyingum. Samhugurinn meðal Eyjamanna í gosinu gleymist seint og bindur enn íbúana böndum, jafnvel þá heimamenn sem fæddir eru eftir gos.

Lína 114: Lína 113:

=== Hraunhitaveitan ===
=== Hraunhitaveitan ===
[[Mynd:Gos 23.jpg|thumb|Hraunhitaveitan í júlí 1976.]]
[[Mynd:Gos 23.jpg|thumb|500px|Hraunhitaveitan í júlí 1976.]]
Eftir að flest kurl voru komin til grafar fóru menn að velta fyrir sér nýjum leiðum til að nýta þá orku sem leyndist í nýja hrauninu. Stórt svæði á miðju hrauninu var flatt út og holur boraðar og vatn leitt þar ofan í til þess að hita upp hús. Þetta var kallað [[Hraunhitaveitan]].

Lína 125: Lína 124:
Árið 2005, 32 árum eftir lok gossins, hófst uppgröftur á húsum við Suðurveg sem grófust undir vikri. Uppgröfturinn ber heitið [[Pompei Norðursins]].

== Allir í bátana ==
== 1973 Allir í bátana ==
* [[Allir í bátana]] er safn greina, sagna og mynda sem Ingibergur Óskarsson hefur safnað.
* [[1973 Allir í bátana]] er safn greina, sagna og mynda sem Ingibergur Óskarsson hefur safnað.

== Myndasafn ==
== Myndasafn ==
Lína 334: Lína 333:
</gallery>
</gallery>

''Þann 23. janúar 2007 var opnaður [http://www.heimaslod.is/gos gosmyndavefur á Heimaslóð]. Þar er að finna fjölda myndbanda og ljósmynda ásamt ítarlegum lýsingum tengdum gosinu.''

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Leiðsagnarval