| Daníel byrjaði snemma til sjós á trillum frá Grímsey, en kom til Vestmannaeyja 1955. Árið 1956 byrjaði hann sem skipstjóri með [[Ísleifur|Ísleif]]. Árið 1960 sótti hann nýjan bát [[Hringver]] til Svíþjóðar fyrir [[Helgi Benediktsson|Helga Benediktsson]]. Næst réðist hann til [[Einar ríki|Einars ríka]], og sótti Engey til Noregs og fiskaði vel á það skip. Hann stofnaði sína eigin útgerð, átti [[Kópur|Kóp VE 11]] og var með það skip til dauðadags.
| |