„Kraftaverkið Guðlaugur Friðþórsson“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Einstakt afrek [[Guðlaugur Friðþórsson|Guðlaugs Friðþórssonar]] fyrir rúmum 20 árum verður vafalítið lengi í minnum haft. Hann synti 5-6 km í svartamyrkri og köldum sjó til lands, eftir að [[Hellisey VE-503]] fórst. Hann náði landi á austanverðri Heimaey og braust um úfið hraun til byggða. Fjórir skipsfélagar Guðlaugs fórust.
Vélbáturinn [[Hellisey VE-503]] fórst að kvöldi sunnudagsins 11. mars 1984 um kl. 23.00. Með Hellisey VE fórust [[Hjörtur R. Jónsson]] skipstjóri, 25 ára, [[Pétur Sigurðsson]], 1. vélstjóri, 21 árs, [[Engilbert Eiðsson]], 2. vélstjóri, 19 ára, og [[Valur Smári Geirsson]] matsveinn, 26 ára. Guðlaugur, stýrimaður, sem þá var 22 ára, komst einn lífs af.
Báturinn var að togveiðum um 5 km austur af [[Stórhöfði|Stórhöfða]] á [[Heimaey]] þegar trollið festist í botni. Það var ágætisveður, norðan andvari, heiðskírt og tveggja gráða frost. Guðlaugur hafði verið sofandi neðan þilja þegar Valur Smári, matsveinn, vakti hann og sagði að trollið væri fast í botni. Þegar Guðlaugur kom upp á þilfar stóð strekktur togvírinn beint niður svo sjór rann inn fyrir lunninguna. Með því að slaka á vírnum og keyra á festuna lagðist báturinn aðeins. Að sögn Guðlaugs var líkt og kvika kæmi undir bátinn og hann lagðist á möstrin. Skyndilega hvolfdi bátnum á nokkrum sekúndum. Allir skipverjar lentu í sjónum, en Guðlaugi tókst að komst á kjöl bátsins ásamt þeim Hirti og Pétri.
Reyndu þeir að ná til gúmbjörgunarbáts sem var á 6 metra dýpi, en ógjörningur reyndist að ná í bátinn. Skipið var ekki búið sjálfvirkum sleppibúnaði, en til stóð að setja þannig búnað í skipið um næstu páska. „Við ákváðum þarna saman þrír á kili að ef svo ótrúlega vildi til að einhver okkar lifði af, þá skyldum við láta það koma fram að það eina sem hefði getað bjargað okkur væri sjálfvirkur sjósleppibúnaður Sigmunds,“ segir Guðlaugur.
'''''Eftirfarandi viðtal tók [[Árni Johnsen]], þá blaðamaður á Morgunblaðinu, við Guðlaug skömmu eftir að sá síðarnefndi vann hið einstaka afrek. Viðtalið birtist í Morgunblaðinu á sínum tíma og hér á eftir fara stiklur úr viðtalinu.'''''
'''''Eftirfarandi viðtal tók [[Árni Johnsen]], þá blaðamaður á Morgunblaðinu, við Guðlaug skömmu eftir að sá síðarnefndi vann hið einstaka afrek. Viðtalið birtist í Morgunblaðinu á sínum tíma og hér á eftir fara stiklur úr viðtalinu.'''''


Lína 48: Lína 39:


<meta:creator>Skapti Örn Ólafsson</meta:creator>
<meta:creator>Skapti Örn Ólafsson</meta:creator>
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Viðtöl]]
11.675

breytingar

Leiðsagnarval