Blik 1947/Spaug.
(Endurbeint frá Blik 1947./Spaug.)
- Spaug
- fært úr stíl í stílinn.
Eitt af innyflum mannsins er samvizkan. Hún er mórauð í flestum.
———————
Í Vestmannaeyjum eru til húsdýr, sem heita kanínur, sem hvorki mjólka né verpa eggjum. Þær eru ferfætt dýr með stór eyru og skott á rassinum.
Í Reykjavík ganga kanínurnar á tveim fótum. Þær hafa engin eyru en hafa loðin skott á baki og brjósti og eru notaðar handa hermönnum.
———————
Aðalsmenn stunda aðallega kontóristastörf og annað þ.u.l.
———————
Frúin (við gesti sína): Gerið
svo vel að drekka vatn með
matnum. Það er svo hollt að
skola innan á sér lungun.
———————
Skyrið er strokkað úr rjómanum og þá verður sýran eftir.
———————
Aðalmunur á manni og þorski er sá, að maðurinn er klofinn í mjórri endann en það er þorskurinn ekki.