Strembuhellir
(Endurbeint frá Agðahellir)
Framan við efstu hús á Illugagötu má finna Strembuhelli, en hann er einnig kallaður Agðahellir. Hann stendur í Agðahrauni sem er suðvestan við Landakirkju.
Hellirinn er ekki mjög stór og ein manneskja í einu kemst rétt í hann á köflum. Tvö göt eru ofan í jörðina með nokkurra metra millibili, þar opnast svolítil hvelfing og er hægt að ganga á milli opanna. Hlaðin hefur verið grjótvarða svo að auðveldara sé að koma auga á hann. Hann fannst árið 1870 af fjárleitarmönnum.
Heimildir
- Ferðabók F.Í. 1948 bls 119-124