Vatnsskortur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 09:02 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 09:02 eftir Eyjavefur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vatnsskorturinn var alltaf eitt erfiðasta vandamál byggðarinnar. Á Heimaey voru nokkrir staðir þar sem fólk gat náð sér í vatnsdropa en vatnið var ekki gott. Má nærri geta að hinn alvarlegi vatnsskortur hefur haft áhrif á mannlífið. Almenningur var þjakaður af verslunaránauð, drepsóttum og fákunnáttu. Barnadauði algengur af völdum ginklofans fram á miðja 19.öld og flúðu konur Vestmannaeyjar til að ala börn sín. Aðeins fjórða hvert nýfætt barn lifði og þegar verst lét dóu öll börn rétt eftir fæðingu. Almanaksárið 1703 voru 318 íbúar í Vestmannaeyjum en fjölskyldur 56. Eftir eldgos Lakagíga 1783 og Móðuharðindin sem af því leiddi, voru árið 1800 173 íbúar í Vestmannaeyjum.

Vatnsvandinn leystist alveg þegar Vestmannaeyingar fengu vatn í leiðslum frá fastalandinu árið 1968.