Taugaveiki

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 08:59 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 08:59 eftir Eyjavefur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

1860 dó 13. hver maður í Vestmannaeyjum úr taugaveiki. Sullaveiki var viðloðandi og fingur og handarmein tíð hjá sjómönnum á vertíð. Barnadauði var nokkur og orsakir hans oftar en ekki þekkingarskortur. Börnin fengu of fljótt fasta fæðu og jafnvel fýlakjöt. Magnúsi Stephensen héraðslæknir, skrifaði 1864. „Úr þessum asnakjálka“ hefst bréfið. Fréttir engar, utan sóðaskapar. Svínaríið tekur í hnúkana. Forir við bæjardyr og fýladaunn. Magnúsi leiðist innan um þetta og svo heimska indbildska kaupmenn sem drekka og ráða öllu, því helmingur bænda er svo skuldugur að þeir hafa pantsett allt sitt og lifa á náð þeirra.

Mörg heimili voru þó þrifnaðar og myndarheimili. Samt var það víða að öllu var dengt í opnar forir við heimili. Árið 1901 voru íbúar í Eyjum 607.

Skæð skarlatsótt

Skæð skarlatssótt gekk í Vestmannaeyjum skömmu eftir síðustu aldamót. Var þá húsið Dvergasteinn gert að sóttvarnarhúsi. Dvergasteinn stóð við Heimagötu. Var húsið hlaðið úr móbergi úr Heimakletti 1883 og voru steinarnir límdir saman með kalki. Dvergasteinn fór undir hraun í gosinu.