Tíundi áratugurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 09:53 eftir Eyjavefur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júní 2005 kl. 09:53 eftir Eyjavefur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kvótinn minnkar

Á tíunda áratugnum fór bolfiskskvóti fiskiskipaflotanns ört minnkandi var þannig komið að árskvóti meðal vertíðarbáta var töluvert minni en fiskaðist á vertíðinni einni saman á sams konar bát 10 til 15 árum áður. En frágangur aflans í kjölfar karavæðingar varð til þess að aflinn varð verðmætari.

Eftir að kvótinn minnkaði svo mikið þá jókst bæði leigu- og kaupverðið á honum. Þetta olli því að sumir útgerðamenn létu sjómennina taka þátt í kvótakaupum og urðu margir sjómenn fyrir tekjuskerðingu vegna þessa.

Miklar breytingar hafa átt sér stað í skipaflota Eyjamanna síðustu árin. Skipin hafa verið lengd,breikkuð og byggt yfir þau.