Sveinn Hjaltason (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. janúar 2020 kl. 15:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. janúar 2020 kl. 15:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum fæddist 3. desember 1815 í Mýrdal og lést 23. júni 1879 í Norðurgarði.
Foreldrar hans voru Hjalti Filippusson bóndi í Skarðshjáleigu í Mýrdal, f. 1781, d. 16. janúar 1825 í Skarðshjáleigu, og kona hans Gyðríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1785, d. 3. janúar 1859 á Vesturhúsum.

Systkini Sveins í Eyjum voru:
1. Sigríður Hjaltadóttir vinnukona í Nýjabæ, f. 9. ágúst 1818.
2. Filippus Hjaltason vinnumaður í Nöjsomhed, f. 12. maí 1820.
3. Eyjólfur Hjaltason á Löndum, sjávarbóndi 1870, bókbindari í Kornhól, f. 19. desember 1821.
4. Björn Hjaltason vinnumaður, sjómaður, f. 10. júní 1843, drukknaði 26. mars 1842.
Hálfbræður Sveins, synir Gyðríðar og Þorkels Jónssonar síðari manns hennar:
5. Jón Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, tómthúsmaður í Grímshjalli, f. 18. september 1826.
6. Guðmundur Þorkelsson vinnumaður á Vesturhúsum, f. 2. mars 1828, d. 7. mars 1859.
Bróðursonur Sveins var Þórður Hjaltason á Steinsstöðum.

Sveinn var hjá foreldrum sínum í Skarðshjáleigu 1816 til 1828/9, en fór þá að Pétursey í Mýrdal. Hann var vinnudrengur á Vatnsskarðshólum þar 1832-35, vinnumaður á Dyrhólum þar 1835-37, síðan á Fitjarmýri u. Eyjafjöllum.
Hann fluttist til Eyja úr Fljótshlíð 1840 og varð þá vinnumaður í Godthaab, var vinnumaður í Pétursborg 1842, fyrirvinna hjá ekkjunni Ingibjörgu Erasmusdóttur á Kirkjubæ 1843, vinnumaður í Nöjsomhed 1845 og þar var Kristín Jónsdóttir vinnukona.
Sveinn var ókvæntur lóðs á Gjábakka 1846 og ráðskona hans var Margrét Einarsdóttir 73 ára. 1847 og var hann ókvæntur húsbóndi í Stakkagerði og bústyra hans var Kristín Jónsdóttir. Sveinn var húsbóndi á Vesturhúsum 1848. Gyðríður móðir hans og Guðmundur hálfbróðir hans voru með honum. Hann var kvæntur bóndi og lóðs á Vesturhúsum 1849 og enn 1859, er hann missti Kristínu konu sína.
Hann var ekkill á Vesturhúsum 1860 með börnin Margréti og Gunnar hjá sér, og bústýra hans var Ingibjörg Ólafsdóttir frá Unhól í Holtum, f. 21. júlí 1829.
Sveinn var húsráðandi og sjávarbóndi þar 1870. Ingibjörg var bústýra hans. Hjá honum var Margrét dóttir hans 22 ára. Vinnufólk var Eyvindur Jónsson ekkill 46 ára með son sinn Eyvind 5 ára, (mun vera sá, sem var bóndi í Dúðu í Fljótshlíð 1860. Hann kom til Eyja 1870 úr Sigluvíkursókn með Eyvind son sinn. Þar var einnig Runólfur Magnússon lausamaður, sem „lifir af vinnu sinni“. Líka var þar niðursetningurinn Hjálmar Ísaksson 10 ára.
Sveinn var meðal brottfluttra 1874, frá Norðurgarði til Gullbringusýslu og kom þaðan 1877.
Hann lést 1879 í Norðurgarði.

Kona Sveins Hjaltasonar, (7. september 1849), var Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1817, d. 8. október 1859.
Börn þeirra hér:
1. Margrét Sveinsdóttir, f. 5. ágúst 1848, vinnukona í Jómsborg, d. 30. maí 1882, hrapaði úr Dalfjalli.
2. Þorbjörg Sveinsdóttir, f. 7. febrúar 1850, d. 18. júlí 1851 úr „barnaveikindum“.
3. Filippus Sveinsson, f. 3. október 1851, d. 23. október 1851 „af barnaveiki“.
4. Gyðríður Sveinsdóttir, f. 2. febrúar 1853, d. 16. mars 1853 úr „barnaveikindum“.
5. Filippína Sveinsdóttir, f. 10. mars 1854, d. 17. mars 1854 „af barnaveiki“.
6. Sveinn Sveinsson, f. 12. október 1855, d. 5. nóvember 1855 „af barnaveiki“.
7. Gunnar Sveinsson, f. 2. júlí 1857, d. 8. október 1863 „af taksótt“.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.