Sveinbjörn Hjartarson (Geithálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 14:36 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 14:36 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinbjörn Hjartarson fæddist í Vestmannaeyjum 4. nóvember 1915 og lést 5. janúar 1978. Foreldrar hans voru Katrín Sveinbjörnsdóttir og Hjörtur Einarsson kenndur við Geitháls. Sveinbjörn var kvæntur Guðrúnu Guðmundsdóttur sem ættuð var að austan. Þau eignuðust þrjú börn, Helgu, Guðmund og Hjört.

Ungur að árum hóf hann sjóróðra með Oddgeiri Þórarinssyni og síðar með Eyjólfi á Búastöðum. Árið 1945 gerðist hann formaður á Hilmi og Frigg. Vann Sveinbjörn og skipshöfn hans mikið björgunarafrek þegar þeim tókst að bjarga 7 mönnum af Veigu þegar hún fórst í aftakaveðri árið 1951. Árið 1952 stofnaði hann ásamt bróður sínum hlutafélag sem kaupir 49 lesta bát frá Danmörku sem þeir nefna Frigg líkt og gamla bátinn. Þessi bátur sökk út af Krísavíkurbergi árið 1973 en þá höfðu þeir nýflutt útgerð sína til Grindavíkur.