Stormy Weather

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 09:15 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 09:15 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kvikmyndin "Stormy Weather" var frumsýnd árið 2003 og var tekin upp í Frakklandi og í Vestmannaeyjum. Handritshöfundur og leikstjóri er hin íslensk/franska Solveig Anspach en hún er fædd í Vestmannaeyjum. Myndin hlaut góða dóma og hlaut hún tilnefningu á Eddu-verðlaunahátíðinni sem besta myndin. Meðal leikara eru Élodie Bouchez, Didda Jónsdóttir sem hlaut Eddu-verðlaun fyrir besta leik í kvenhlutverki, og Ingvar E. Sigurðsson.

Myndin fjallar um miðaldra íslenska konu sem á við geðræn vandamál að stríða. Hún endar á frönsku geðsjúkrahúsi þar sem sálfræðingur einn reynir að hjálpa henni með óhefðbundnum hætti. Þegar konan er send aftur til Íslands (Vestmannaeyja) þá ákveður sálfræðingurinn að elta hana til að fylgjast með henni á hennar heimaslóð.

Myndin var tekin upp víða á Heimaey og var einn aðaltökustaðurinn við Skólaveg, nánar tiltekið við húsið Hlíðarenda. Fjöldi Eyjabúa tók þátt í gerð myndarinnar og voru margir sem fengu aukahlutverk í myndinni.