Stelkur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 11:05 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2006 kl. 11:05 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Stelkur (Tringa totanus)

  • Lengd: 27-29 cm.
  • Fluglag: Er kraftmikill flugfugl en flýgur nokkuð skrykkjótt og hefur vængina þanda góða stund eftir að hann er sestur.
  • Fæða: Skordýr, lirfur og ormar.
  • Varpstöðvar: Hann verpir í móum og í mýrlendi, en utan varptíma dvelur hann tíðum í fjörum og við árósa
  • Hreiður: Sinuklætt, oftast á grónum þúfum.
  • Egg: 4, ljósgulleit eða ljósbrún með rauðbrúnum dröfnum.
  • Heimkynni: Víða í Norður- og Mið-Evrópu og austur um Asíu allt til Kyrrahafsstranda. Hér er hann farfugl að mestu og flýgur til Bretlandseyja á veturna.




Stelkurinn er vaðfugl og er algengur og áberandi fugl hér á landi. Hann er með rauðleita fætur og goggrót, annars er hann gráyrjóttur á búkinn. Lengd stelksins er um 27-29 cm, hann er 150 g að þyngd og með vænghaf upp á 60-65 cm. Stelkurinn er jurta- og skordýraæta, og er mjög hávær. Hann heldur sig við mýrardrög, flóa, og í sinuflækjum í láglendi í um 400 m hæð t.d. uppi á heiðum. Stelkurinn birtist fyrst í Vestmanneyjum um 1962, og nú í dag er hann algengasti spörfuglinn sem verpir hérna í Eyjum, hann verpir því nánast um allt vegna mikillar útbreiðslu hér.

Stelkurinn stundar einkvæni og sumir velja sér varpsetur, hreiðrið er klætt með sinu í laut eða á þúfu. Hreiðrið er vel vaktað þar sem makarnir skiptast á að liggja á eggjunum og fari stelkshjónin bæði frá því fela þau það með sinugrasinu. Varptíminn er um miðjan maí. Eggin eru oftast 4, eggjaskurnið er rjómagult eða ljósbrúnt. Útungunartími er rúmlega 20 dagar. Mjög misjafnt er hvenær fuglarnir yfirgefa ungana.